Breytingar á umferð við álverið í Straumsvík
Reykjanesbraut (41), undirgöng við Staumsvík
Þessa dagana er verið að hefja vinnu við byggingu undirganga við álverið í Straumsvík. Undirgöngin eiga að auka öryggi vegfarenda og draga úr slyshættu. Vegagerðin stendur fyrir verkinu og verktaki við framkvæmdirnar er Suðurverk hf. Framkvæmdum á að ljúka í júlí 2012.
Fyrsta skef í framkvæmdinni er að færa umferð um Reykjanesbraut yfir á bráðabirgðaveg fram hjá framkvæmdasvæðinu. Þessi breyting verður gerð n.k. laugardag, 18. febrúar, kl. 10:00.
Vegagerðin biður ökumenn að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.
Sjá á myndinni hvernig bráðbrigðavegurinn lítur út og hvar fyrirhuguð undirgöng munu koma.