Fréttir
  • Axarvegur - Yfirlitsmynd

Axarvegur, Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Matsskýrsla

10.3.2011

Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu fyrir Axarveg, Hringveg í Skriðdal og Hringveg um Berufjarðarbotn sem unnin er á grundvelli frummatsskýrslu. Framkvæmdin ber heitið Axarvegur (939), Hringvegur (1) í Skriðdal og Hringvegur (1) um Berufjarðarbotn.
Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum við frummatsskýrslu og tekin afstaða til þeirra. Vegagerðin hefur farið þess á leit við Skipulagsstofnun að matsskýrsla verði tekin til meðferðar hjá stofnuninni í samræmi við 11. gr. laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.

Innan fjögurra vikna frá því að Skipulagsstofnun tekur á móti matsskýrslu skal stofnunin gefa rökstutt álit sitt á því hvort skýrslan uppfylli skilyrði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim og að umhverfisáhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt. Í áliti Skipulagsstofnunar skal gera grein fyrir helstu forsendum matsins, þ.m.t. gildi þeirra gagna sem liggja til grundvallar matinu, og niðurstöðum þess. Jafnframt skal í álitinu fjalla um afgreiðslu framkvæmdaraðila á þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við kynningu á frummatsskýrslu.

Þegar álit Skipulagsstofnunar liggur fyrir skal það kynnt umhverfisráðherra, framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og öðrum umsagnaraðilum, svo og þeim sem gert hafa athugasemdir við frummatsskýrslu á kynningartíma. Almenningur skal eiga greiðan aðgang að áliti Skipulagsstofnunar og matsskýrslu og skal stofnunin auglýsa í dagblaði sem gefið er út á landsvísu að álitið og matsskýrslan liggi fyrir.

Axarvegur (939) Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Matsskýrsla

Axarvegur - Viðauki I - listi yfir fylgiskjöl
Axarvegur - Fylgiskjöl 1-12
Axarvegur - Fylgiskjöl 13-22
Axarvegur - Fylgiskjöl 23-29
Axarvegur - Fylgiskjöl 30-34

Axarvegur - Forsíða teikningaheftis - listi
Axarvegur - Teikning 1 - Yfilitsmynd
Axarvegur - Teikning 2 - Vegakerfið
Axarvegur - Teikning 3 - Áhrifasvæði
Axarvegur - Teikning 4 - Veglínur
Axarvegur - Teikning 5 - Umhverfisþættir
Axarvegur - Teikning 6 - Víðerni
Axarvegur - Teikning 7 - Jarðfræðikort
Axarvegur - Teikning 8 - Framkvæmdayfirlit, veglínur, námur, fornleifar og rannsóknarsvæði
Axarvegur - Teikning 9 - Veglínur í Berufirði, grunnmynd, án fyllinga og skeringa. Fornleifar, votlendi, landnotkun o.fl.
Axarvegur - Teikning 10 - Veglínur í Berufirði, grunnmynd, með fyllingum og skeringum. Fornleifar, votlendi, landnotkun o.fl.
Axarvegur - Teikning 11 - Grunnmynd, fornleifar, votlendi, landnotkun o.fl. í Berufirði, veglínur með fyllingum og skeringum (11 1-9)
Axarvegur - Teikning 11 - Grunnmynd, fornleifar, votlendi, landnotkun o.fl. í Berufirði, veglínur með fyllingum og skeringum (11 10-17)
Axarvegur - Teikning 12 - Langsnið - 1-4
Axarvegur - Teikning 13 - Þversnið - 1-4
Axarvegur - Teikning 14 - Þrívíddarmyndir
Axarvegur - Teikning 15 - Langsnið núverandi Hringvegar