Fréttir
  • Svaðbælisá 31. janúar
  • Skilti undir Eyjafjöllum 31. janúar
  • Skilti, gosið í baksýn

Öskufok skemmir skilti og glit

Náttúran enn að verki undir Eyjafjöllum

2.2.2011

Náttúruöflin minna enn á sig undir Eyjafjöllum og víðar í nágrenninu. Vegagerðarmenn berjast við öskufokið sem eyðileggur umferðaskilti og glit á stikum og merkjum. Búið er að endurnýja glit (endurkastt) á stikum þrisvar sinnum að undanförnu en öskufok eyðir glitinu jafnóðum Skiltin, einsog sést hér á myndinni, fá líka sinn skerf af völdum vinds og ösku.

Stöðugt hefur svo þurft að moka upp úr Svaðbælisánni, en varnargarðar hafa nú verið hækkaðir og breikkaðir þannig að vonandi dugi um sinn. Ástandið er reyndar allra verst í kringum Svaðbælisánna en stöðugt berst gosefni niður af fjallinu.

Skilti hafa hinsvegar eyðilagst víðar en þar, því einnig hafa þau farið illa á Sólheimasandi og Mýrdalssandi. Mestar verða skemmdirnar í norðan og austan áttum.