Fréttir
  • Héðinsfjörður

Áhrif Héðinsfjarðarganga á Fjallabyggð

Rástefna haldin í Fjallabyggð 22. janúar

19.1.2011

Ráðstefna verður haldin í Menntaskólanum á Tröllaskaga 22. janúar í tilefni útgáfu bókarinnar "Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun." Héðinsfjarðargöngin munu að líkindum gerbreyta samgöngum, búsetu, atvinnu, fasteignamarkaði, opinberri þjónustu og félagslegu lífi í Fjallabyggð.

Síðastliðin þrjú ár hefur hópur fræðimanna við Háskólann á Akureyri unnið að rannsókn á stöðu Fjallabyggðar fyrir göng með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og mun hópurinn fylgjast með samfélagsþróuninni næstu árin og er von á annari bók að því loknu um breytingarnar sem verða með tilkomu ganganna. Vegamálastjóri tekur þátt í pallborðsumræðunum.

 

Dagskráin:

 

Áhrif Héðinsfjarðarganga á Fjallabyggð

Ráðstefna í tilefni af útgáfu bókarinnar

Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun

Menntaskólanum á Tröllaskaga, 22. janúar 2011

 

13:00 Fjallabyggð fyrir göng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun

Þóroddur Bjarnason

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Sigurður V. Ásbjarnarson bæjarstjóri og Stefán B.

Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri veita fyrstu eintökum bókarinnar viðtöku.

13:15 Umferð um Tröllaskaga og umferðarspá fyrir Héðinsfjarðargöng

Jón Þorvaldur Heiðarsson

13:30 Áhrif samgöngubóta á fasteignamarkað

Vífill Karlsson

13:45 Eigendur frístundahúsa í Fjallabyggð

Edward Huijbens

14:00 Kaffihlé

14:15 Félagslegur auður í Fjallabyggð

Kolbeinn Stefánsson og Sveinn Arnarsson

14:30 Upplifun íbúa Fjallabyggðar á heilbrigðisþjónustu fyrir göng

Sonja Stelly Gústafsdóttir

14:45 Áhrif Héðinsfjarðarganga á stöðu kynjanna

Kjartan Ólafsson og Þóra Kristín Þórsdóttir

15:00 Nokkur orð um mikilvægi þess að fá að sofa heima hjá sér

Björn Þorláksson

15:20 Pallborðsumræður

16:00 Ráðstefnuslit