Fréttir
  • Fánaborg Vegagerðar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2011

5.1.2011

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.

Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2011. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikdagsins 2. febrúar 2011.

Eyðublöðin má nálgast undir Umsóknir um rannsóknarstyrki og þar koma einnig fram upplýsingar um áherslusvið vegna rannsókna Vegagerðarinnar.