Ögmundur heimsækir Vegagerðina
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ræddi við starfsmenn
Ögmundur Jónasson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur að undanförnu heimsótt stofnanir ráðuneytisins og í dag föstudaginn 17. september ræddi hann við starfsfólk Vegagerðinnar bæði í Reykjavík og eins út um allt land með hjálp fjarfundabúnaðar.
Fram kom í máli ráðherra að hann ætti eftir að setja sig vel inn í fjölda mála þegar kemur að samgöngumálum en að hann hefði sérstakan áhuga á því að kynna sér hvernig ákvarðanir um framkvæmdir eru teknar og hvort og hvernig er hlustað á sérfræðiþekkingu vegagerðarfólks.
Vegamálastjóri Hreinn Haraldsson tók á móti Ögmundi eftir hádegið og kynnti honum hina margháttuðu starfsemi Vegagerðarinnar. Að því loknu ræddi ráðherra við á annað hundrað starfsmanna í Reykjavík og út um allt land.
Fram kom hjá ráðherra að hann ætti efir að setja sig inn í sameiningu stofnana á samgöngusviði en á Alþingi hafa verið lögð fram til kynningar tvö frumvörp um Farsýsluna og Vegagerðina. Hann vildi kynna sér málið áður en að hann tæki afstöðu til þess. Einnig minntist Ögmundur á að verkefni sem tengjast fjármögnun lífeyrissjóðanna um breikkun vega út frá Reykjavík og Vaðlaheiðargöngum væru í réttum farvegi. Mikilvægt væri að hans mati að ekki væri um einkaframkvæmd að ræða heldur yrði verkið á forræði Vegagerðarinnar en með fjármögnun frá lífeyrissjóðum þótt í sérfélagi væri. Varðandi veggjöldin færi það mikið eftir upphæðinni en að öðru leiti væru vegfarendur að borga fyrir vegina á einn eða annan hátt. Spurningin snerist um form þess.