Fréttir
  • Berufjörður - Hringvegur - Öxi

Umferðarkönnun í Berufirði 17. og 19. júní

14.7.2008

Vegagerðin áætlar að standa fyrir umferðarkönnun á gatnamótum Hringvegar og Axarvegar í Berufirði, fimmtudaginn 17. júlí og laugardaginn 19. júlí n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.

Tilgangur með könnuninni er að kanna áhrif fyrirhugaðs Axarvegar á umferðarvenjur vegfarenda á Austurlandi. Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og svæða, sem síðar nýtast við almenna áætlanagerð.

Framkvæmd umferðarkönnunarinnar verður með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstaðnum, verða stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

Vonast er til að vegfarendur, sem leið eiga um Berufjörðinn, taki starfsmönnum Vegagerðarinnar vel og jafnframt er beðist velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum.