Fréttir
  • Breyting umferðar milli ára

Þróun umferðar og hugsanleg áhrif bensínverðs - nýjar tölur

1.7.2008

Á undanförnum vikum hefur Vegagerðinni borist fjöldi fyrirspurna frá opinberum aðilum, fjölmiðlum og áhugasömum einstaklingum, um þróun umferðar á landinu. Fólk hefur viljað vita hvort áhrifa bensínverðs sé farið að gæta á akstursvenjur fólks. Vegna þessa hafa verið teknar saman tölur um þróun umferðar á 14 talningarstöðum vítt og breitt um landið.

Um er að ræða, að borið er saman umferðarmagn í hverjum mánuði, milli áranna 2006 og 2007 annarsvegar og hins vegar áranna 2007 og 2008.

Meðfylgjandi er tafla er sýnir hvern talningarstað fyrir sig, þar sem fram kemur mismunur milli ára í hverjum mánuði. Taflan er einnig birt sem stöplarit og graf þar sem stöplaritið sýnir myndrænt, hlutfallslega breytingu milli ára, í hverjum mánuði, þegar allir talningastaðirnir hafa verið lagðir saman. Grafið sýnir, aftur á móti, heildarumferðarmagn áðurnefndra 14 staða, í hverjum mánuði.

Eins og við mátti búast sýnir stöplaritið þó nokkrar sveiflur milli ára, í sömu mánuðum, þá sérstaklega í vetrarumferðinni. Ekki hafa fundist skyringar á þeim mikla mun sem er milli nóvember 2006 og 2007.

Af umferðargrafinu má sjá skýran mun á milli áranna 2006 og 2007 en það er aðeins óljósara hvert stefnir árið 2008. Miklar sveiflur eru á milli apríl og mars 2007 og 2008, sennilegast vegna þess, að páskar voru í apríl 2006 og 2007 en í mars 2008. Fyrir fimm fyrstu mánuði 2008, er þó klárlega minni aukning, á milli áranna 2007 og 2008 en áranna 2006 og 2007. Hugsanlega gæti það skýrst, að hluta, af verra veðurfari í ár.

Erum við að sjá breytingu á aksturshegðan fólks? Eða er þetta bara tilfallandi, veðurtengd, niðursveifla?

Nýjustu tölur, frá 14 talningarstöðum, í júní 2008, benda eindregið til að umferðin á Íslandi sé að dragast saman, sjá meðf. myndir.

Eins og sjá má í töflunni þá er umferðin að dragast saman á öllum talningarstöðum nema vestan Hvolsvallar. Kann það að skýrast af umferð í tengslum við Landsmót hestamanna, sem haldið er á Hellu dagana 30. júní til 6. júlí.

Þróun umferðar og hugsanleg áhrif bensínverðs - Tafla og línu-/súlurit (PDF)

Breyting umferðar milli ára - línurit

Nánari upplýsingar veitir Friðleifur Ingi Brynjarsson