Fréttir
  • Sandgerðisvegur á Miðnesheiði

Hraðamyndavélar teknar í notkun á Reykjanesi

fjórar vélar teknar í notkun -- alls eru þær nú 9 talsins

29.5.2008

Fimmtudaginn 29. maí voru hraðamyndavélar á Reykjanesi teknar í notkun, en þær eru staðsettar á Garðskagavegi og Sandgerðisvegi.

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar.

Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Þá hafa alls níu vélar verið settar upp af þessu tagi og eftir ár verða vélarnar orðnar 15.