Fréttir
  • Vetrarþjónusta

Vetur 2008 - Ráðstefna um vetrarþjónustu á Akureyri 2.-4. apríl 2008

31.1.2008

Ráðstefna Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu "VETUR 2008" verður haldin á Akureyri dagana 2. - 4. apríl. Fundarstaður: Sjallinn, Akureyri. Viðfangsefni ráðstefnunnar er almenn þjónusta og öryggi sem tengist akstri að vetrarlagi.

Í tengslum við ráðstefnuna verður einnig sýning á tækjum og búnaði á Akureyrarflugvelli.

Frekari upplýsingar gefur Ingibjörg Hjálmfríðardóttir, imma@congress.is

Skráning á ráðstefnuna fer fram hér: Vetur 2008 - ráðstefnuskráning

Skráningarfrestur er til 20. febrúar

Gisting

Tekin hefur verið frá gisting fyrir þátttakendur ráðstefnunnar og þarf að bóka gistinguna um leið og skráning á ráðstefnuna fer fram. Gisting greiðist beint til viðkomandi hótels, við brottför

Skráningargjald

Þátttökugjald er kr. 39.000,-

Innifalið er ráðstefnugögn, kaffiveitingar, 3 hádegisverðir og 2 kvöldverðir

Flug

Flugfélag Íslands býður sérstök kjör á flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar í tengslum við ráðstefnuna og er fargjaldið eingöngu bókanlegt hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 milli kl. 09:00 og 16:00 virka daga. Senda má einnig vefpóst á hopadeild@flugfelag.is.

Flugverð kr. 7.300,- aðra leiðina (til/frá Akureyri ef flogið er alla daga nema föstudaga)

Flugverð kr. 8.300,- aðra leiðina (til/frá Akureyri ef flogið er á föstudögum)

ATH verð eru með flugvallarsköttum.

Dagskrá:

2. apríl
Rútur frá flugvelli að Hótel KEA
11:00 - 13:00 Skráning í Sjallanum (léttar veitingar)
13:00 Skipun fundarstjóra, kynning á dagskrá,
13:15 Ráðstefnan sett, Kristján Möller samgönguráðherra
13:30 Ávarp, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri
13:45 Cost verkefni, stefnumótun um vetrarþjónustu í Evrópu. Björn Ólafsson Vg.
14:15 Veður, veðurspár og vetrarþjónusta. Einar Sveinbjörnsson Veðurvaktin
14:45

Fyrirspurnir og umræður

15:15 Vetrarþjónusta og umferðaröryggi. Skúli Þórðarson Vegsýn
15:45 Kaffi
16:15 Vetrarþjónusta í þéttbýli. Guðbjartur Sigfússon Reykjavíkurborg, Helgi Már Pálsson Akureyrarbær
17:00 Fyrirspurnir og umræður
17:30 Fundi slitið.
19:00 Kvöldverður á Hótel KEA
3. apríl
08:00 Elit kerfið Nicolai Jónasson Vg.
08:30 Mælabúnaður við vegi, vöktun, umhirða, verklagsreglur. Karl Jensson Vg.
09:00 Ferilvöktun, aðgerðaskráning og gagnavinnsla. Einar Pálsson Vg.
09:30 Fyrirspurnir og umræður
10:00 Kaffi
10:30 Vinterman og skipulag vetrarþjónustu í Danmörku. Freddy Knudsen, Bo Sommer Vejdirektoratet Kaupmannahöfn, Stefán Sigurðsson Ístak
12:00 Fyrirspurnir og umræður
12:30 Hádegisverður á Hótel KEA
13:30 Verkefni þjónustumiðstöðva. Sveinn Sveinsson Vg.
14:00 Snjótennur, stilling og umhirða á tækjabúnaði. Daníel Árnason, Þórarinn Ólafsson Vg.
14:30 Fyrirspurnir og umræður
15:00 Sýning á tækjum og búnaði á Akureyrarflugvelli (Rútur til og frá flugvelli)
19:30 Hátíðarkvöldverður, Hótel KEA
4. apríl
08:30 Skipulag verktaka í vetrarþjónustu: Hilmar Ólafsson/Guðmundur Þorgrímsson
09:00 Hálkuvarnir, Ásbjörn Ólafsson, Jóhann Skúlason Vg.
09:30 Fyrirspurnir og umræður
10:00 Kaffi
10:30 Gæðaúttektir í vetrarþjónustu: Einar Gíslason, Guðmundur Ragnarsson Vg.
11:00 Fyrirspurnir og umræður
11:30 Samantekt og niðurstöður, NN
12:00 Fundarslit
12:30 Hádegisverður á Hótel KEA
14:00 Rútur frá KEA á flugvöll


Í tengslum við ráðstefnuna verður sýning á tækjum og búnaði við vetrarþjónustu og einnig munu fyrirtæki sem vinna við og/eða selja hugbúnað eða annan búnað tengdum vetrarþjónustu kynna það sem þeir hafa upp á að bjóða.