Fréttir
Hraðamyndavélar teknar í notkun í Fáskrúðsfjarðargöngum
fleiri vélar teknar í notkun á næstu vikum
Föstudaginn 18. janúar verða hraðamyndavélar í Fáskrúðsfjarðargöngum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.
Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna og á næstu vikum munu fleiri vélar bætast við á þjóðvegum landsins. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar.
Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.