Fréttir
  • Óshlíðargöng - Skarfaskersleið

Óshlíðargöng -- forval

Fimm lýsa yfir áhuga á því að taka þátt í forvalinu

14.8.2007

Forvalið er vegna jarðganga milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega. Um er að ræða 8,7 m breið, 5,1 km löng jarðgöng, byggingu um 310 m langra steinsteyptra vegskála, gerð um 3,0 km langra vega og byggingu tveggja um 15 m langra steinsteyptra brúa. Tilboð verða væntanlega opnuð eftir áramót og framkvæmdir hefjast næsta vor. Göngin verða líklega opnuð fyrir umferð 2010.