Fréttir
  • Herjólfur

Athugasemd við frétt

um næturferðir Herjólfs

23.7.2007

Frétt Morgunblaðsins á laugardaginn var:

BÆJARYFIRVÖLD í Vestmannaeyjum hafa enn ekki fengið svör um það hvernig staðið verður að næturferðum til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum, segir að boltinn sé nú hjá Vegagerðinni og Eimskipum og líkir ástandi við það að Suðurlandsbraut eða Vesturlandsvegi yrði lokað fyrir menningarnótt í Reykjavík. Að sögn Elliða er Herjólfur hluti af þjóðvegakerfinu og því varði málið ekki aðeins Eyjamenn, heldur þjóðina alla. "Íslendingar hljóta að gera þá kröfu að við getum ferðast eftir þjóðvegakerfinu, sama hvort við erum á leið til Vestmannaeyja, Reykjavíkur eða Egilsstaða." Verkfræðistofan VST skilar óháðri úttekt á forsendum jarðganga til Eyja eftir helgi. Telur Elliði að jarðgöng séu fýsilegasta lausnin og segir hann Eyjamenn hafa gert þá kröfu að ríkið svari því hvort jarðgöng komi til greina, ella verði að snúa sér að næstbesta kostinum; ferjulægi í Bakkafjöru.

Athugasemd Vegagerðarinnar mánudag:

Í frétt í Morgunblaðinu laugardaginn 21. júlí er því haldið fram að bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafi ekki enn fengið svör um hvernig næturferðum verði háttað til Vestmannaeyja um Verslunarmannahelgina. Við þessa stuttu frétt, þar sem haft er eftir bæjarstjóra Vestmanneyja, er margt að athuga.

Í tölvupósti þann 3. júlí óskaði Vegagerðin eftir því við Eimskip, samkvæmt beiðni bæjarstjórnar Vestmannaeyja, að farnar yrðu þrjár auka-næturferðir um verslunarmannahelgina í viðbót við tvær aukaferðir sem fastsettar eru í samningi. Þessar þrjár ferðir yrðu miðvikudag 1. ágúst, föstudag 3. ágúst og miðvikudag 8. ágúst. Farið frá Vestamannaeyjum kl 23:00 og frá Þorlákshöfn kl. 02:00 eftir miðnætti.

Eimskip brást vel við og auglýsti þessar ferðir strax á heimasíðu sinni og í fjölmiðlum.

Fimmtudaginn 19. júlí laust eftir hádegi óskaði bæjarstjóri Vestmannaeyja eftir því að bætt verði við tveimur næturferðum, þ.e.a.s. aðfararnótt miðvikudagsins 1. ágúst og aðfararnótt fimmtudagsins 9. ágúst. Krafist var svars eigi síðar en 24. júlí.

Hjá Vegagerðinni þótti þessi beiðni nokkuð óljós, sérstaklega vegna þess að óskað var aukaferðar sem búið var að auglýsa í tvær vikur að farin yrði, þ.e.a.s. miðvikudagsferðin 8. ágúst. Föstudaginn 20. júlí var ítrekað reynt að hafa samband við bæjarstjórann og tókst það loks klukkan 16:30. Kvaðst hann ætla að skýra þessa beiðni nánar eftir helgina.

Í ljósi alls þessa verður að teljast undarleg staðhæfing í umræddri frétt þess efnis að bæjaryfirvöld hafi ekki enn fengið svör um hvernig næturferðum verði háttað um verslunarmannahelgina. Enn undarlegri eru þau ummæli bæjarstjórans að líkja ástandinu við það að Suðurlandsvegi eða Vesturlandsvegi yrði lokað fyrir menningarnótt í Reykjavík.

Ríkissjóður styrkir tvær ferðir á dag með Herjólfi og fimm næturferðir um verslunarmannahelgi, einnig eru tvær flugferðir á dag með Flugfélagi Íslands styrktar. Auk þess er óstyrkt flug frá Bakka í samkeppni við nefndar styrktar ferðir.

PS. Við þetta er því að bæta að bæjarstjórinn hefur upplýst (síðdegis á mánudegi) að mistök hafi verið gerð þegar óskað var næturferðanna og átt að hafa standa aðfararnótt föstudagsins 10 ágúst en ekki fimmtudagins 9. ágúst.