Fréttir
  • Hríseyjarferjan Sævar.

Hríseyjarferjan Sævar siglir til áramóta

Tafir á niðurstöðu í kærumálum vegna Hríseyjarútboðs

21.3.2023

Vegagerðin hefur framlengt í annað sinn samning við Andey ehf. sem mun gilda frá 1. apríl til og með 31. desember 2023, um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógssands. Þetta er gert til að ekki verði þjónustufall á siglingum Hríseyjarferju en það myndi valda mikilli röskun á samgöngum við Hrísey. 

Andey ehf. hefur séð um rekstur Hríseyjarferjunnar undanfarin ár en samningurinn rann út um áramótin. Vegagerðin bauð út siglingarnar að nýju og til stóð að gera nýjan samning á grundvelli útboðsferlis sem tæki gildi 1. janúar 2023. Hins vegar urðu ófyrirséðar tafir vegna kæru á útboðinu sem valda því að ekki er unnt að gera nýjan samning um þessar siglingar fyrr en niðurstaða í málinu liggur fyrir.  

Til að bregðast við þessu var ákveðið að semja tímabundið í þrjá mánuð við Andey ehf., 1. janúar þessa árs til 31. mars, til að samgöngur milli Hríseyjar og Árskógssands féllu ekki niður. Nú er það samningstímabil að renna út og lausn á kæru á útboðinu ekki í höfn svo samningur var framlengdur í annað sinn. Vegagerðin lýsir yfir sérstakri ánægju með hve vel starfsfólk Andeyjar ehf. hefur brugðist við þessum beiðnum.