Fréttir
  • Unnið hefur verið að tillögum að breytingum á gatnamótunum með það að markmiði að bæta umferðaröryggi gatnamótanna um nokkurt skeið.
  • Kort, Sæbraut Kleppsmýrarvegur.

Umferðaröryggi bætt við gatnamót Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar

Vegagerðin og Reykjavíkurborg vinna sameiginlega að breytingum til að bæta umferðaröryggi.

2.2.2023

Umferðaröryggi verður bætt á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs. Vegagerðin og Reykjavíkurborg 
vinna sameiginlega að þessum undirbúningi en Vegagerðin er
veghaldari á Sæbraut. Framkvæmdir fara á fullt um leið og
veður leyfir en farið verður fyrr í það sem hægt er að gera nú
þegar eins og að bæta götulýsingu.Þetta var samþykkt á fundi
umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar þann 1. febrúar sl.

Sú leið sem er farin byggist á greiningarvinnu verkfræðistofunnar Eflu
á því hvaða aðgerðir gætu bætt umferðaröryggi skólabarna og annarra
hjólandi og gangandi vegfarenda sem allra fyrst. Til viðbótar við eftirfarandi
aðgerðir stendur enn til að reisa bráðabirgðagöngubrú yfir Sæbraut.

Eftirfarandi breytingar verða gerðar:

·         Ein vinstribeygjuakrein verður af Kleppsmýrarvegi, við Sæbraut, í stað tveggja.

·         Miðeyjur á Sæbraut verða lagfærðar.

·         Gönguleið sunnan Kleppsmýrarvegar verður breikkuð.

·         Gangbrautir verða á öllum framhjáhlaupum með hraðalækkandi aðgerðum.

·         Götulýsing verður bætt.

Unnið hefur verið að tillögum að breytingum á gatnamótunum í samvinnu Vegagerðarinnar og
Reykjavíkurborgar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi gatnamótanna um nokkurt skeið.

Með uppbyggingu Vogabyggðar hefur umferð gangandi og hjólandi vegfarenda sem fara um þessi gatnamót aukist til muna og eru margir þeirra börn á leið til og frá skóla og frístundum. Nú þegar hefur Vegagerðin lækkað hámarkshraða á Sæbraut staðbundið við gatnamótin og gangandi vegfarendum á leið yfir Sæbraut hefur verið gefinn lengri grænn tími á ljósum en áður var.

Vinstribeygja á tveimur akreinum óæskileg

Núverandi fyrirkomulag, þar sem tekin er vinstribeygja á tveimur akreinum frá Kleppsmýrarvegi á sama tíma og gangandi vegfarendur fara yfir Sæbraut, er mjög óæskilegt með tilliti til umferðaröryggis. Breytingarnar hafa óhjákvæmilega áhrif á flæði ökutækja frá Kleppsmýrarvegi á annatíma en ávinningur hvað varðar umferðaröryggi er ótvíræður.

Göngubrú á áætlun á árinu

Enn fremur er unnið að undirbúningi þess að koma fyrir bráðabirgðagöngubrú til að auka öryggi gangandi vegfarenda á leið yfir Sæbraut enn frekar þar til stokkur verður gerður. Gert er ráð fyrir að sú göngubrú verði móts við Snekkjuvog og komi til framkvæmda síðar á árinu ef allt gengur eftir. Breytingarnar sem fyrirhugaðar eru á gatnamótum Sæbrautar við Kleppsmýrarveg þó nýtast áfram eftir að göngubrú kemur enda verður þar áfram umferð gangandi vegfarenda.

·         Sjá tillöguna í heild sinni með ítarupplýsingum

·         Sjá teikningu af breytingunum á gatnamótunum