Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 28. október
Haldin á Hilton hóteli
Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður
haldin í 21. sinn föstudaginn 28. október næstkomandi og fer fram á Hilton
hóteli Suðurlandsbraut.
Ráðstefnan hefur skapað sér sérstöðu í ráðstefnuhaldi hér á
landi því fáar ráðstefnur bjóða upp á jafn fjölbreytileg umfjöllunarefni. Ætíð
kennir margra grasa á ráðstefnunni enda tekin fyrir um 20 rannsóknarverkefni
hverju sinni. Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að
styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki endilega er einblínt á
hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru:
mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af
starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa,
verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um
rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021
en þó er það ekki einhlítt. Opnað verður fyrir skráningu í byrjun október.
Stefnt er að því að dagskrá liggi fyrir í byrjun
október.