Aldrei meiri umferð í maí á Hringvegi
stefnir í metár í umferðinni á Hringvegi
Umferðin á Hringvegi í maí jókst talsvert mikið eða um tæp tíu prósent. Aldrei hefur mælst jafn mikil umferð í maí og núna. Met frá árinu 2019 var slegið. Reikna má með að umferðin í ár aukist um meira en þrjú prósent og gangi það eftir verður met umferðarár í ár.
Samanburður á umferð milli sömu mánaða fyrir árin 2021 og
2022
Umferð jókst talsvert í nýliðnum maí miðað við sama mánuð á síðasta
ári, eða um 9,7%. Þessi mikla aukning varð til til þess að nýtt met var
slegið í umferð um lykilteljara á Hringvegi, en gamla metið var frá árinu 2019.
Nýja metið reyndist 6,7% yfir því gamla.
Hlutfallslega jókst umferð mest um Austurland eða um 47,6% en minnst jókst hún í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 4,7%.
Aukning varð í öllum mælisniðum og einstaka sniði jókst umferð, hlutfallslega mest við Hvalsnes í Lóni, á Austurlandi, eða um 129,5%. Að svipaðri stærðargráðu var mælisnið á Mýrdalssandi en þar jókst umferðin um rúmlega 123,2%.
Samanburður á uppsafnaðri umferð frá áramótum milli áranna
2021 og 2022
Frá áramótum hefur umferðin nú aukist um 3,1% sé hún borin
saman við sama tímabil á síðasta ári.
Mest hefur umferð aukist um Austurland eða um 29,2% en umferð hefur dregist saman í kringum höfuðborgarsvæðið eða um 1,4% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Samanburður á umferð eftir vikudögum
Nú hefur uppsöfnuð umferð aukist í öllum vikudögum ef frá
eru taldir mánudagar en á þeim dögum mælist 3,3% samdráttur. Mest hefur umferð
aukist á miðvikudögum eða um 7,0%.
Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.
Umferðarhorfur út árið 2022
Nú stefnir í að umferð geti aukist um rúm 3%, ef hún hegðar
sér líkt og í meðalári. Gangi þessar horfur eftir endar heildaraukningin í nýju
umferðarmeti, eða svo til á pari við umferðina árið 2018 og rúmu 1% yfir
metárinu 2019.