Fréttir
  • . Í Grindavíkurhöfn flæddi yfir bryggjukanta sem fóru allir á kaf. Mynd/Víkurfréttir
  • Sjólag.is föstudagsmorguninn eftir að lægðin er í rénum. Hæsta ölduhæð yfir 10 m.
  • Grindavíkurhöfn. Séð frá hafnarvoginni og út að trébryggju sem var á kafi.
  • Klæðing á Nesvegi (425) rétt vestan við Brimketil flettist af. Mynd/Valgarður Guðmundsson
  • Um metersdjúpur skurður myndaðist í vegöxl eftir flóðið.
  • Klæðing á Nesvegi (425) rétt vestan við Brimketil flettist af. Mynd/Valgarður Guðmundsson
  • Klæðing á Nesvegi (425) rétt vestan við Brimketil flettist af. Mynd/Valgarður Guðmundsson

Nokkrar skemmdir vegna flóða á Reykjanesi

Upplýsingar um veður og sjólag á sjolag.is

7.1.2022

Mjög kröftug lægð kom að landinu sunnanverðu í vikunni. Nokkur hætta stafaði af enda lægðin djúp og sjávarstaða há. Starfsmenn Vegagerðarinnar fylgdust vel með aðdraganda veðurs og veittu upplýsingar um sjávarstöðu og ölduhæð á vefnum sjolag.is. Nokkrar skemmdir urðu á sjóvarnargörðum auk þess sem klæðing flettist af á 300 metra kafla á Nesvegi (425).

Nokkur fyrirvari var á óveðrinu sem stóð yfir 5. og 6. janúar. Vitað var að lægðin yrði djúp með loftþrýstingi rétt undir 960 hPa og myndi auk þess skella á suðurströndinni þegar sjávarstaða væri há. Ölduspáin utan við landgrunn gerði ráð fyrir yfir 12 m kenniöldu en þá getur stök alda náð yfir 16 m hæð með mjög löngum sveiflutíma. Það var því ljóst að þessi atburður yrði með þeim stærstu á 30 ára tímabili.

Vegagerðin heldur úti vefsíðunni sjolag.is þar sem hægt er að fylgjast með veðri og sjólagi í rauntíma og sjá ölduspá fram í tímann. Miðað við spár var nokkur hætta á eignatjóni vegna samverkandi ölduhæðar, sjávarhæðar og lágs loftþrýstings. Í Grindavíkurhöfn flæddi yfir bryggjukanta sem fóru allir á kaf. Einhverjir sjóvarnargarðar löskuðust vegna veðursins, sjór flæddi inn á svæði hjá Matorku, vestan við Grindavík og golfvöllurinn  við Grindavík fór á kaf.

Tölulegar upplýsingar

Kóti í hæðarkerfi hafnarinnar

Meðal stórstraums flóð [MSSFL]

+3,3 m

Hæð hafnarkants

+5,2 m

Mæld sjávarhæð kl 09:40

+5,37 m

Flóðatafla í Grindavík kl 09:40

+3,17 m

Loftþrýstingur kl 09:40

957 hPa


Hafnadeild Vegagerðarinnar mun meta tjónið af völdum veðursins um leið og tækifæri gefst.

Klæðing flettist af vegi

Tjón varð ekki aðeins á höfnum og sjóvarnargörðum heldur fékk Nesvegur (425) sem liggur frá Grindavík að Reykjanesvita að kenna á því. „Ég hef aldrei séð annað eins brim. Þetta var hálf óhugnanlegt,“ segir Valgarður Guðmundsson eftirlitsmaður á Suðursvæði Vegagerðarinnar. Á um 300 metra kafla vegarins, rétt vestan við Brimketilinn, flettist klæðing af veginum auk þess sem grjót lá á honum. „Þetta hefur líklega gerst á fimmtudagsmorgun, í morgunflóðinu,“ lýsir Valgarður en fyrir utan skemmdir á klæðingunni grófst töluvert úr vegöxlinni fjær sjónum. „Þetta var stór skurður, um metersdjúpur.“

Starfsfólk þjónustustöðvar Vegagerðarinnar hafa sett upp skilti sem vara við holum og grjótkasti en auk þess hefur hraðinn verið lækkaður niður í 50 km/klst. Verktaki var fenginn til að hreinsa ónýta klæðingu og grjót af veginum en gert verður við veginn um leið og veður og hitastig leyfa. Þangað til þurfa ökumenn að fara varlega þegar ekið er yfir þennan vegkafla.