Fréttir
  • Vegagerðin óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þjónusta Vegagerðarinnar um jól og áramót

Sólarhringsvakt á vaktstöð Vegagerðarinnar

23.12.2021

Þjónusta Vegagerðarinnar um hátíðirnar verður með nokkuð hefðbundnu sniði.

Aðfangadagur jóla og gamlársdagur

Á aðfangadag og gamlársdag verður umferðarþjónustan í síma 1777 opin frá klukkan 6.30 til 22. Starfsmenn vaktstöðva verða hins vegar á vakt allan sólarhringinn.

Hlutverk vaktstöðva og þjónustustöðva Vegagerðarinnar er að tryggja að vegir haldist í því ástandi sem ætlast er til skv. snjómokstursreglum.

Jóladagur og nýársdagur

Á jóladag og nýársdag verður umferðarþjónustan í síma 1777 opin frá klukkan 7:30 til 22. Sólarhringsvakt er á vaktstöðvum Vegagerðarinnar.

Annar í jólum

Á annan í jólum er veitt hefðbundin þjónusta og umferðarþjónustan veitir upplýsingar um færð og veður í síma 1777 frá klukkan 6.30 til 22.

Neyðarsími Vegagerðarinnar er 522 1112 en hann á aðeins að nota í neyðartilvikum.

Skert vetrarþjónusta á umferðarminni langleiðum

Aðfangadagur jóla og gamlársdagur verða með sömu vetrarþjónustu og um helgar. Á jóladag og nýársdag verður skert þjónusta á umferðarminni langleiðum og verða þær þjónustaðar á milli kl. 10:00 og kl. 17:00.

Þessar leiðir eru:  

  • Borgarnes – Stykkishólmur
  • Búðardalur – Patreksfjörður
  • Búðardalur – Ísafjörður
  • Blönduós – Sauðárkrókur um Þverárfjall
  • Sauðárkrókur – Siglufjörður
  • Húsavík – Þórshöfn – Vopnafjörður
  • Húsavík - Mývatn
  • Mývatn – Fellabær
  • Vopnafjörður – vegamót við Hringveg
  • Fellabær – Borgarfjörður eystri
  • Breiðdalsvík- Höfn
  • Höfn - Jökulsárlón