Fréttir
  • Hraðamyndavél Akureyri

Hraðamyndavélar á Akureyri

Vélar teknar í notkun á Hörgárbraut/Hringvegi

19.10.2021

Nýjar hraðamyndavélar hafa verið teknar í notkun á Akureyri á Hörgárbraut, á Hringveginum þar sem hann liggur í gegnum Akureyri. Myndavélarnar eru einnig rauðljósamyndavélar. Þær voru teknar í notkun að morgni 19. október.

Vélarnar eru staðsettar við ljósastýrða gönguþverun við Stórholt. Búnaðurinn var settur upp síðastliðið vor og er nú kominn í fulla virkni.

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að fækka umferðarslysum með því að draga úr ökuhraða og akstri gegn rauðu ljósi á þjóðvegum. Umferðaröryggisáætlun er hluti Samgönguáætlunar.

Lögreglan á Norðurlandi eystra, Akureyrarbær og Vegagerðin annast uppsetningu og rekstur myndavélanna.

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot og rauðljósaakstur eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.