Meðalhraðaeftirlit - nýjung á Íslandi
byrjar á Grindavíkurvegi og í Norðfjarðargöngum
Samstarfssamningur um sjálfvirkt hraðaeftirlit með löggæslumyndum hefur verið undirritaður en um er að ræða svokallað meðalhraðaeftirlit. Tilgangurinn er að auka umferðaröryggi en vélarnar mæla meðalhraða á ákveðnum köflum og ef sá hraði er yfir löglegum hraða er sektað. Fljótlega verður tekið upp slíkt eftirlit á Grindavíkurvegi og í Norðfjarðargöngum.
Það var Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, sem staðfesti nýjan samstarfssamning Vegagerðar,
Samgöngustofu og Ríkislögreglustjóra um sjálfvirkt hraðaeftirlit með löggæslumyndavélum þann 21. september.
Markmið samningsins er að fækka banaslysum og alvarlega slösuðum í umferðinni
með markvissu hraðaeftirliti á völdum stöðum á þjóðvegum landsins.
Myndavélar hafa nú þegar verið settar upp á Grindavíkurvegi og í Norðfjarðargöngum og verða þær fljótlega teknar í notkun. Þá er stefnt að því að setja upp samskonar vélar á næstu mánuðum á Þingvallavegi þar sem hann liggur í gegnum þjóðgarðinn. Fleiri kaflar eru og til skoðunar m.a. hvalfjarðargöng.
Samningurinn er gerður á grundvelli umferðaröryggisáætlunar sem er hluti af samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034.
Lögreglustjóraembættið á Vesturlandi sér um umsýslu og úrvinnslu gagna úr myndavélum í umboði Ríkislögreglustjóra. Vegagerðin greiðir á samningstímanum ígildi tveggja stöðugilda á ári til að annast verklega framkvæmd við úrvinnslu sekta og kostnað vegna tæknimála, samtals að hámarki 15 milljónir króna á ári.
Myndin sem fylgir var tekin við undirritun samningsins.
Frá vinstri: Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri,
Kristín Helga Markúsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu og þróunar hjá
Samgöngustofu, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,
og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.