Fréttir
  • Ráðstefnan verður haldin á Hilton föstudaginn 29. október 2021.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 20 ára

Verður haldin í Hilton föstudaginn 29. október 2021

20.9.2021

Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í 20. sinn föstudaginn 29. október næstkomandi og fer fram á Hilton hóteli Suðurlandsbraut.

Ráðstefnan hefur skapað sér sérstöðu í ráðstefnuhaldi hér á landi því fáar ráðstefnur bjóða upp á jafn fjölbreytileg umfjöllunarefni. Ætíð kennir margra grasa á ráðstefnunni enda tekin fyrir um 20 rannsóknarverkefni hverju sinni. Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki endilega er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsmönnum Vegagerðarinnar, starfsmönnum ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almennra áhugamanna um samgöngur og rannsóknir.

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2020 en þó er það ekki einhlítt.

Stefnt er að því að dagskrá liggi fyrir í byrjun október.