Líkur á að Baldur sigli á miðvikudag
túrbína kemur til landsins sunnudagskvöld
Ný túrbína í Baldur er á leið til landsins og verður ef allt gengur upp komin til Stykkishólms seint í kvöld. Reiknað er með að skipið geti hafið reglulegar siglingar strax á miðvikudag. Þetta er sagt með öllum fyrirvörum um að vel gangi að fá túrbínuna til landsins í dag og viðgerð gangi samkvæmt áætlun, segir í upplýsingum frá Sæferðum sem reka Breiðafjarðarferjuna Baldur.
Búið er að taka túrbínuna frá og svo virðist sem lega hafi gefið sig en þörf er á að skipta túrbínunni út og sem fyrr segir er von á varahlutnum til Reykjavíkur í kvöld þar sem verður strax farið með hana í Stykkishólm. Reiknað er með viðgerð á morgun, reynslusiglingum á þriðjudag og sem fyrr segir gangi allt upp verði reglulegar siglingar teknar upp á miðvikudag.
Baldur bilaði á Breiðafirði sl. fimmtudag og draga þurfti skipið í höfn í Stykkishólmi.