Fréttir
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Covid daglegur munur vika 9
  • Covid umferðin það sem af er ári 01.03.2021
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Minni umferð í febrúar á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin dróst saman um tæpt prósent

1.3.2021

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum febrúar mánuði reyndist tæplega prósenti minni en í febrúar fyrir ári síðan. Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um 3,5 prósent. Umferðin í síðustu viku var aðeins minni en í vikunni áður en meira en í sömu viku fyrir ári.


Milli mánaða 2020 og 2021
Umferðin yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu reyndist 0,8% minni í nýliðnum febrúar miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Mest dróst umferð saman um lykilmælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 6,3% en 2,8% aukning varð aftur á móti um mælisnið á Reykjanesbraut. 

Frá áramótum
Nú hefur umferð dregist saman um 3,5% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Umferð eftir vikudögum og vikum
Umferðin í nýliðnum mánuði dróst saman í öllum vikudögum utan föstudaga en þar mældist 10,3% aukning.  En mest dróst umferð saman á sunnudögum eða um 6,8%.

Umferðin vegna Covid-19
Ef einungis er horft til síðstu viku eða viku 9, frá áramótum, þá reyndist hún 0,5% minni en í viku 8 en aftur á móti 0,7% meiri en í sömu viku á síðasta ári. 

Horfur út árið
Haldist einkenni umferðarinnar svipuð og í meðalári og verði ekki fyrir frekari truflunum vegna Covid-faraldursins en orðið er þá gæti umferðin aukist um 8% nú í ár miðað við síðasta ár.  Verði af slíkri aukningu myndi umferðin samt sem áður enda í að vera um 3% undir því sem hún var árið 2019. Þannig að eftir tvo fyrstu mánuði ársins er ekki útlit fyrir að umferðin nái sama þunga og mældist fyrir Covid-faraldurinn.