Fréttir
  • Vesturlandsvegur

Hált malbik – viðbrögð Vegagerðarinnar

farið verður yfir málið og viðbrögð bætt

29.6.2020

Í ljósi þess hörmulega slyss sem varð í gær sunnudag á Vesturlandsvegi norðan Grundarhverfis fer Vegagerðin nú yfir málið. Farið verður ofan í þessa einstöku framkvæmd með þeim verktökum sem að þeim koma en auk þess verða verkferlar skoðaðir og breytingar gerðar til þess að freista þess að svona atburður endurtaki sig ekki.  Starfsfólk Vegagerðarinnar er slegið yfir þessu slysi og hugur okkar er með ættingjum og aðstandendum þeirra sem létust í slysinu. Umferðaröryggi er eitt það mikilvægasta í öllum störfum Vegagerðarinnar.  

Metið verður hvað gerðist og af hverju. Það er síðan rannsóknarnefnd samgönguslysa sem rannsakar þetta slys en Vegagerðin mun bregðast við eins og kostur er strax enda ekki von á niðurstöðu nefndarinnar fyrr en síðar.

Í þessu tilviki á Vesturlandsveginum hafði verið unnið að yfirlögn á fimmtudagskvöld. Verktaki sinnir því verki eftir útboð og eins hafði eftirlit með þessum verkum verið boðið út. Eftirlitsmaður mat aðstæður að lokinni yfirlögn þannig að hætta væri á hálku og tók ákvörðun um að vara við hálku með merkingum.

Mikill hiti á sunnudag og úrhellis rigning leiðir síðan til þess að þessi kafli verður enn hálli en ella og eru aðstæður þannig mjög slæmar þegar hið hörmulega slys verður.

Vegagerðin fer nú yfir allt málið og hvort að verklag við yfirlögn hafi staðist útboðsskilmála og hvort Vegagerðin ásamt verktökum og eftirliti skuli endurskoða og efla enn frekar öryggiskröfur við framkvæmdir að þessu tagi.

Unnið er að því að hálkumæla umræddan kafla ásamt öðrum köflum á höfuðborgarsvæðinu sem grunur er um að séu einnig og hálir. Að því loknu verður þeir sandaðir. Hraði á þessum köflum hefur verið tekinn niður. Vegagerðin biður vegfarendur um að aka varlega sérstaklega í ljósi þess að spáð er háu hitastigi og einnig má búast við rigningu sem eykur möguleika á varasömu ástandi nýlagðs malbiks.

Enn á ný, Vegagerðin harmar þetta slys og starfsfólk sendir aðstandendum hinna látnu okkar dýpstu samúð.