Fréttir
  • Fagurt er í Mjóafirði.
  • Sums staðar sást varla í snjóblásarann.
  • Grafin hafa verið einbreið göng með útskotum en næstu daga verður unnið að því að breikka göngin.
  • Sums staðar var stálið 5 metra hátt.
  • Snjóblásari er eina verkfærið sem dugar í þessum aðstæðum.
  • Mjóifjörður er 18 km langur fjörður milli Norðfjarðarflóa og Seyðisfjarðar.
  • Enn er vetrarlegt um að litast á Mjóafjarðarheiði.

Fimm metra stál á Mjóafjarðarheiði

Loks fært til Mjóafjarðar

20.5.2020

Vegurinn inn í Mjóafjörð hefur verið opnaður. Fjóra daga tók að berjast í gegnum þykkt stálið sem safnast hafði upp í vetur en sums staðar var það rúmir fimm metrar á hæð. Vegurinn yfir Mjóafjarðarheiði hefur verið meira og minna lokaður síðan í október.

„Byrjað var að moka síðastliðinn föstudag. Haldið var áfram á mánudaginn og um miðjan dag í dag, miðvikudag, voru komin mjó göng með útskotum alla leið,“ segir Ari B. Guðmundsson yfirverkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Reyðarfirði.

Vegurinn inn í Mjóafjörð lokaðist í október á síðasta ári. Hann var mokaður um miðjan þann mánuð fyrir Neyðarlínuna sem þurfti að flytja búnað til að leggja ljósleiðara í Mjóafirði. Mokað var á ný mánaðarmótin nóvember, desember til að koma tækjabúnaði til baka. „Á sama tíma heimsótti samgönguráðherra Mjóafjörð til að vígja ljósleiðarann. Opnunin stóð þó stutt og fljótlega lokaðist vegurinn á ný og hefur verið lokaður síðan,“ upplýsir Ari.

Kristmundur Dagsson, verktaki á vegum Vegagerðarinnar, sér um að munda snjóblásarann á Mjóafjarðarheiði. Snjórinn er óvenju mikill, mun meiri en undanfarin ár, og sums staðar var stálið rúmlega fimm metra hátt. Næstu daga verða göngin breikkuð með snjóblásaranum svo bílar geti mæst með góðu móti. Fyrst um sinn er vegurinn þó aðeins fær jeppum, á föstudag ættu fjórhjóladrifnir bílar að komast leiðar sinnar en fólksbílar líklega eftir helgi.

Tíðarfarið hefur mikið að segja um það hvenær Mjóafjarðarheiðin er mokuð að sögn Ara. „Ef snjórinn er lítill er stundum mokað einstaka sinnum yfir veturinn. Önnur ár er tíðin slæm og dæmi um að moka hafi þurft heiðina til að koma þangað fjárbílum að hausti.“

Í Mjóafirði búa í kringum 14 manns yfir vetrartímann. Í Brekkuþorpi er allt til alls, kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi. Yfir vetrartímann er eina leiðin til og frá þorpinu sjóleiðis en Flóabáturinn Björgvin siglir milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar tvisvar í viku.

En voru ekki íbúar orðnir langeygir eftir að komast landleiðina frá þorpinu? „Jú við fundum fyrir dálitlum þrýstingi. Við erum kannski aðeins seinna á ferðinni miðað við undanfarin ár. Þar spilar inní bæði tíðarfarið og Covid-19.“