Fréttir
  • Covid umferðin í viku 20
  • Covid Umferðin á Hb vikuleg 20

Samdrátturinn í umferðinni gengur til baka

18.5.2020

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, viku 20, er farin að nálgast mjög þá umferð sem var í sömu viku fyrir ári síðan og virðist því sem rýmkun á samkomubanni vegna Covid-19 leiði hratt til aukningar á umferðinni frá því hún varð minnst. 

Enn eykst umferðin á höfuðborgarsvæðinu, í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar,  því nú mældist samdráttur í umferðinni á milli viku 20 árið 2019 og 2020 einungis rétt rúmlega 4 prósent.  Eins og áður er samdrátturinn mestur á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk eða rúmlega 14 prósent en minnstur á Reykjanesbraut, við Dalveg í Kópavogi, eða 0,3%.  Þannig segja má að umferðin á Reykjanesbrautinni sé að verða sú sama og hún var fyrir kórónufaraldurinn.

Mismunur í viku 20 eftir mælisniðum:
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk                       -14,3%
Reykjanesbraut við Dalveg                                         -0,3%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku                        -1,4%