Fréttir
  • Covid umferðin það sem af er apríl (27.4.)
  • Covid umferðin í viku 17

Svipaður samdráttur í umferð í liðinni viku og vikunni áður

enn gætir áhrifa páskanna

27.4.2020

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var svipuð í nýliðinni viku (viku 17) og vikunni þar áður (viku 16) en enn gerir mismunandi tímasetning páska samanburð á milli ára erfiðan. Samdrátturinn nemur tæpum 20 prósentum. Þessi vika mun segja betri sögu af samanburðinum við síðasta ár en þær tölur verða birtar eftir viku. 

Mjög svipaður samdráttur var í umferð í viku 17 miðað við sömu viku á síðasta ári, í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, og var í viku 16 en samdrátturinn reyndist 19,6%.  Þótt samdrátturinn hafi verið svipaður og í vikunni þar áður er hægt að merkja það að umferð hafi verið að aukast síðustu tvær vikurnar en vika 17 var síðasta vikan þar sem staðsetning páska truflar samanburðinn því verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig næsta vika eða vika 18 kemur út úr samanburðinum.  Mjög líklega segir sá samanburður í næstu viku meira til um hvernig staðan er í raun í umferðinni.  Loks verður síðan fróðlegt að sjá þar næstu viku, eða viku 19 þegar samkomubanni lýkur.

Eins og áður leiðir Hafnarfjarðarvegur samdráttinn en lang minnst dregst umferð saman á Reykjanesbraut eða rétt tæp 9%, sjá nánar hér fyrir neðan.

Samdráttartölur í viku 17, eftir mælistöðum:

Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk      -24,5%
Reykjanesbraut við Dalveg Kópavogi         -8,6%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku       -17,7%


Athugið að neðra línuritið sýnir hlutfallslegan samdrátt í umferðinni frá fyrra ár og þar skekkja páskarnir myndina því það er mjög mikill munur á umferðinni um páskana en annars. Efra línuritið sýnir umferðina í þúsundum ökutækja.