Flýtiverkefni Vegagerðarinnar
5.660 milljónir króna úr fjárfestingarátaki fara í verkefni Vegagerðarinnar
Þingsályktun um tímabundið fjárfestingarátak var samþykkt á Alþingi 30.mars 2020. Heildarfjárheimild til átaksins er alls 17.936 milljónir sem skiptist á nokkra verkefnaflokka. Til samgöngumannvirkja á að verja 6.506 milljónum kr. og af þeim fara 5.660 milljónir króna í verkefni hjá Vegagerðinni.Fjárveitingar til flýtiverkefna innan Vegagerðarinnar
- Hafnarframkvæmdir: 750 milljónir
- Breikkun brúa: 700 milljónir
- Hringtorg: 200 milljónir
- Vegaframkvæmdir og hönnun: 1.860 milljónir
- Framkvæmdir við tengivegi: 1.000 milljónir
- Viðhald vega: 1.000 milljónir
- Óveðurstengd verkefni: 150 milljónir
Lögð er áhersla á að nýta þessa fjárveitingu árið 2020. Ef ekki tekst að hefja skilgreind verkefni fyrir 1. september í ár á að færa framlög til annarra verkefna innan sama verkefnaflokks. Þá verða framlög færð til annarra verkefnaflokka ef ljóst er að ekki takist að nýta þau innan einstaks verkefnaflokks fyrir 1. apríl 2021. Til að framfylgja þessu verður fylgst náið með tímaáætlunum og áætluðum kostnaði.
Verkefni sem fá fjárveitingu til vegaframkvæmda og hönnunar (1.860 m.kr.)
- Reykjanesbraut, Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun (hönnun og máu*, framkvæmd 2021-2022) 110 m.kr.
- Reykjanesbraut, Fjarðarhraun – Mjódd (hönnun) 30 m.kr.
- Breiðholtsbraut, Hringvegur – Jaðarsel (hönnun) 30 m.kr.
- Hringvegur, Fossvellir – Hólmsá (hönnun, framkvæmd 2021-2022) 110 m.kr.
- Hringvegur, Bæjarháls – Vesturlandsvegur (framkvæmd) 650 m.kr.
- Hringvegur, Skarhólabraut – Hafravatnsvegur (framkvæmd) 350 m.kr.
- Hringvegur um Heiðarsporð (framkvæmd) 350 m.kr.
- Snæfellsnesvegur um Skógarströnd (framkvæmd 2020 og hönnun og framkvæmd 2021) 100 m.kr.
- Þverárfjallsvegur um Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá (hönnun, framkv. 2020-2022) 100 m.kr.
- Borgarfjarðarvegur, Eiðar-Laufás (hönnun, framkvæmd 2021-2022) 30 m.kr.
- *máu: Mat á umhverfisáhrifum
Breikkun brúa (700 m.kr.)
- · Norðausturvegur um Köldukvíslargil 65 m.kr.
- · Skrið- og Breiðdalsvegur um Gilsá á Völlum 15 m.kr.
- · Bíldudalsvegur um Botnsá 280 m.kr.
- · Vestfjarðavegur um Bjarnadalsá 250 m.kr.
- · Hringvegur um Núpsvötn 20 m.kr.
- · Skeiða- og Hrunamannavegur um Stóru-Laxá 30 m.kr.
- · Hringvegur um Skjálfandafljót 50 m.kr.
Hringtorg (200 m.kr.)
- · Hringvegur, hringtorg við Landvegamót 180 m.kr.
- · Eyrarbakkavegur, hringtorg við Víkurheiði/Bjarkaland 10 m.kr.
- · Skeiða- og Hrunamannavegur, hringtorg á Flúðum 10 m.kr.
Hafnarframkvæmdir (750 m.kr.)
- · Dýpkun í Sandgerði 7 m.kr.
- · Dýpkun við Ólafsvík 63 m.kr.
- · Dýpkun við Þorlákshöfn 34 m.kr.
- · Dýpkun við Þórshöfn 22 m.kr.
- · Dýpkun við Súðavík 92 m.kr.
- · Grjótverkefni, Bakkafjörður 41 m.kr.
- · Grjótverkefni, Njarðvík 34 m.kr.
- · Grjótverkefni, Keflavík 29 m.kr.
- · Grjótverkefni, Sauðárkrókur 24 m.kr.
- · Grjótverkefni, óráðstafað 96 m.kr.
- · Landfylling, Bíldudal 77 m.kr.
- · Stálþil á Djúpavogi 61 m.kr.
- · Sjóvarnir, ýmsir staðir vegna tjóns í óveðri 100 m.kr.
- · Hafna- og strandrannsóknir í höfnum 70 m.kr.
Framkvæmdir við tengivegi – bundið slitlag (1.000 m.kr.)
Gert er ráð fyrir 1.000 milljóna króna viðbótarfjárveitingu til tengivega árið 2020. Alls er framkvæmdaáætlun tengivega fyrir árið 2020 því 1.950 milljón krónur. Gert er ráð fyrir 1.500 milljón króna viðbót fyrir árið 2021.
Skipting fjárveitingar eftir svæðum árin 2020 til 2024
Svæði | Hlutfall | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
Suðursvæði | 23,28% | 454 | 582 | 230 | 223 | 290 |
Vestursvæði | 27,88% | 544 | 697 | 276 | 267 | 347 |
Norðursvæði | 39,42% | 769 | 986 | 390 | 377 | 490 |
Austursvæði | 9,43% | 184 | 236 | 93 | 90 | 117 |
Samtals | 100 % | 1.950 | 2.500 | 989 | 956 | 1.244 |
Viðhald (1.000 m.kr.)
Gert er ráð fyrir 1.000 milljóna króna viðbótarfjárveitingu til viðhalds árið 2020.
- · Viðhald bundinna slitlaga 600 m.kr.
- · Viðhald malarvega 100 m.kr.
- · Styrkingar og endurbætur 150 m.kr.
- · Umferðaröryggi 150 m.kr.
Óveðurstengd verkefni (150 m.kr.)
- · Hafnadeild Upplýsingakerfi um veður og sjólag 20 m.kr.
- · Hafnadeild Endurnýjun öldudufla 40 m.kr.
- · Hafnadeild Sjávarhæðamælingar 40 m.kr.
- · Þjónustusvið Upplýsingagátt vega 20 m.kr.
- · Þjónustusvið Færanleg lokunarhlið 50 m.kr.