Fréttir
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Meira en 50% samdráttur umferðar um Mýrdalssand

gríðarlegur samdráttur á Hringvegi

2.4.2020

Umferðin á Hringveginum í mars dróst gríðarlega mikið saman frá sama mánuði í fyrra eða um 24,4 prósent. Mestur varð samdrátturinn á Mýrdalssandi en þar dróst hún saman um heil 52,3 prósent. Þar hafði straumur ferðamanna verið hvað mestur og aukningin árin á undan líka gríðarmikil. Þetta eru augljós áhrif Covid-19 og hruns í ferðamennskunni.

Milli mánaða 2019 og 2020
Enn meiri samdráttur varð í umferð, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, en varð á höfuðborgarsvæðinu í mars mánuði eða 24,4% samdráttur.  Þessi samdráttur núna kemur ofan í mikinn samdrátt sem varð á Hringveginum á síðasta ári í mars. Umferð á öllum svæðum dregst mikið saman en mest dregst umferðin saman yfir lykilsnið á Norðurlandi eða um tæplega 36%.  Minnst dregst umferðin saman á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 18,5%.

Samdrátturinn í einstaka sniðum er allt frá 16,6% (snið við Úlfarsfell) og upp í 52,3% (snið á Mýrdalssandi).  Þannig að hér er um gríðarlegt fall að ræða í umferð og virðist vera mest á þeim stöðum sem áður höfðu aukist hvað mest meðan ferðamannaþenslan var hvað mest.

Umferðin í mars reyndist vera u.þ.b. mitt á milli marsumferðar árið 2015 og 2016.

Frá áramótum
Nú hefur umferðin dregist saman um tæp 11% frá áramótum.  Mest hefur umferð dregist saman um lykilsnið á Norðurlandi eða um 21% en minnst um lykilsnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 6,1%.

Umferð vikudaga frá áramótum
Umferð hefur dregist mikið saman í öllum vikudögum en mest þó um helgar og mest á sunnudögum eða um 16,7% en minnst á þriðjudögum eða um 8,3%.   E.t.v. gefur þetta vísbendingu um að frístunda- og ferðamannaumferð hafi dregist meira saman en vinnuumferð.

Samanburðartafla










Horfur út árið
Vanalega hefur ekki verið birt spá um umferð út árið á Hringvegi fyrr en í byrjun maí þar sem umferð á Hringvegi er mun sveiflukenndari yfir vetrartímann en á höfuðborgarsvæðinu. En þessir fordæmalausu tímar kalla á að það sé a.m.k. skoðað hvað spálíkanið segir en gjalda verður varhug við því að nákvæmnin er ekki mikil og er þetta meira sett fram til að gefa vísbendingu.  Ef umferðin hegðar sér hlutfallslega innbyrðis milli mánuða eins og í meðalári þá gæti hún dregist saman um rúmlega 11%.  En þetta er auðvitað háð því hversu fljótt hagkerfið og ferðaþjónustan verður að ná sér.   Það gildir þá það sama og á höfuðborgarsvæðinu að þetta getur bæði verið frekar svartsýn spá eða of bjartsýn, allt eftir því hversu fljótt samfélagið réttir úr kútnum.

Talnaefni