Fréttir
  • Covid umferðin það sem af er ári útg.2
  • Covid umferðin það sem af er mars
  • Covid umferðin það sem af er ári

Enn meiri samdráttur í umferðinni

21 prósents samdráttur í mars

30.3.2020

Umferðin þar sem af er mars, í lok viku 13, hefur umferðin í mánuðinum á höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 21 prósent. Það jafngildir rúmlega 35 þús. ökutækjum á dag. Samdrátturinn heldur því áfram að aukast eftir því sem samkomubann er hert og það lengist í því. Samdrátturinn í samfélaginu í heild endurspeglast í umferðinni.

Nú þegar vika 13 er liðin hefur umferð, í þremur lykil mælisniðum Vegagerðarinnar, dregist saman um tæplega 21% það sem af er mars mánuði miðað við sama tímabil á síðasta ári, eða um rétt rúmlega 35 þús. ökutæki á dag.

Afleiðingar faraldursins og samkomubanns eru því að birtast með mjög skýrum hætti í umferðartölum.  Þetta er einnig áhugavert út frá tengingu umferðartalna við landsframleiðslu og reynsla undanfarinna ára sýnir töluvert forspárgildi umferðarinnar um landsframleiðsluna.  Kann þetta fall í umferð því einnig að vera vísbending um það hversu hratt hagkerfið kólnar.

Eins og áður dregst umferð um Hafnarfjarðarveg, hlutfallslega og einnig í fjölda ökutækja, lang mest saman.  Hin tvö sniðin á Reykjanesbraut og á Vesturlandsvegi dragast hlutfallslega svipað saman.  Það er ef til vill rannsóknarefni hvers vegna Hafnarfjarðarvegurinn dregst miklu meira saman en hin tvö sniðin.  Vegagerðin hefur í augnablikinu ekki haldbæra skýringu á þessum mikla mun á samdrætti á Hafnarfjarðarvegi annarsvegar og hinum tveimur sniðunum hins vegar.

Á efstu myndinni má sjá vel fallið í umferðinni eftir að faraldurinn hófst. Númerin benda til viknanna en um er að ræða fyrstu 13 vikur ársins.