Umferð dregst hratt saman á höfuðborgarsvæðinu í marsbyrjun
verður að teljast líklegt að áhrif Covid-19 sé hluti skýringar
Umferðin í byrjun mars hefur dregist mun meira saman en reyndin varð í janúar og febrúar. Líklegt verður að telja að hér gæti áhrifa af ástandinu vegna Covid-19. Hvort sem um er að ræða beinan samdrátt í umferð vegna kórónaveirunnar eða um sé að ræða afleiddan samdrátt vegna minnkandi umsvifa og t.d. fækkunar ferðamanna. Nema hvorttveggja sé ástæðan.
Uppsöfnuð umferð í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, fyrstu 12 dagana í mars, borið saman við sama tímabil á síðasta ári, hefur dregist saman um 4%. Þegar horft er á tengingu umferðar við hagvöxt, sbr. fyrri fréttir Vegagerðarinnar af lykilteljurum, verður að telja þetta umtalsverðan samdrátt haldist hann út mars, sem einnig yrði þá nýtt met í samdrætti milli marsmánuða. En til að setja þennan samdrátt í samhengi við það sem hefur gerst í fyrstu tveimur mánuðum ársins þá dróst umferðin saman um 1,6% í janúar og 0,9% í febrúar. Þannig að það var útlit fyrir einhvern samdrátt í mars líka.En samdrátturinn skiptist svona niður á sniðin þrjú:
Lykilteljari | Samdráttur |
---|---|
Hafnarfjarðarvegur | - 7,1 % |
Reykjanesbraut | - 4,1 % |
Vesturlandsvegur | - 1,3 % |
Af þessu
sést að umferðin dregst mest saman á Hafnarfjarðarvegi en minnst á
Vesturlandsvegi.
Það skal undirstrikað að umræddur samanburður byggir aðeins á 12 daga tímabili í mars, það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu. Það verður að teljast líklegt að einhverskonar samkomubann muni draga verulega úr umferð.