Fréttir
Ráðstefna um steinefnavinnslu 27. mars
Áhugaverðir fyrirlestrar á Hótel Natura
Ráðstefna um steinefnavinnslu verður haldinn föstudaginn 27. mars. Ráðstefnan verður haldin í sal á Hótel Natura (gamla Loftleiðahótelinu). Ráðstefnan hefst klukkan 09:00 og stendur yfir allan daginn. Kaffi og hádegismatur innifalinn. Verð er 14 þúsund krónur.
Erindi á ráðstefnunni verða meðal annars:
- 1. Mismunandi mölunaraðferðir og kröfur
- 2. Steinefni og framtíðin
- 3. Jarðfræði og nýting jarðefna á Íslandi
- 4. Af hverju CE merking fylliefna til mannvirkjagerðar og hvernig það er gert
- 5. Efnisrannsóknir
- 6. Þvottur á steinefnum (á ensku)
- 7. Endurvinnsla steypu
- 8. Forbrjótar
- 9. Framleiðsla og notkun á vélunnum sandi
- 10. Staða efnismála í Bretlandi (á ensku)