Minnsta aukning umferðar á höfuðborgarsvæðinu síðan 2011
umferðin jókst um 1,6 prósent
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í október jókst um 1,6 prósent sem er minnsta aukning í þessum mánuði síðan árið 2011. Þetta er sama þróun og á sér stað á Hringveginum sbr. eldri frétt. Umferðin það sem af er ári hefur aukist um 1,2 prósent sem er einnig minnsta aukning síðan 2011.
Milli
mánaða
Umferð yfir
þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,6% í
nýliðnum mánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Mest jókst umferðin
yfir mælisnið ofan Ártúnsbrekku eða 3,1% en 1,0% samdráttur varð í mælisniði á
Hafnarfjarðarvegi. Meðaltalsaukning í október frá 2005 og til ársins 2018 var
3,2% þ.a.l. er núverandi aukning langt undir meðalþróun. Leita þarf aftur til ársins
2011 til að finna minni aukningu umferðar um höfuðborgarsvæðið í októbermánuði.
Umferð
eftir vikudögum
Mest var
ekið á föstudögum, í nýliðnum mánuði, en minnst á sunnudögum. Hlutfallslega
jókst umferðin mest á laugardögum eða um 2,5% en minnst varð aukningin á
mánudögum eða 0,6%. Umferð jókst að meðaltali um 1,3% á virkum dögum en
2,1% um helgar.
Frá
áramótum
Nú hefur
umferðin, yfir mælisniðin þrjú, aukist um 1,2% frá áramótum. Þessi aukning er
sú minnsta frá árinu 2011.
Horfur út
árið
Nú þegar
aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu er talið líklegast, vegna spáðs
samdráttar í hagkerfinu, að lítil aukning verði í næstu tveim mánuðum og þá
muni árið í heild koma út á um 1% aukningu. Þó að aukning verði má til gamans
geta þess að íbúum á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um 1,7% frá áramótum til
októberbyrjunar og gæti staðan orðið um og yfir 2% heildaraukning í árslok.
Rannsóknir Vegagerðarinnar hafa sýnt fram á afar sterk tengsl á milli umferðar-
og íbúaþróunar, enda ætti það svo sem að liggja nokkuð í augum uppi, þ.a.l. má færa
fyrir því viss rök að um raunsamdrátt í umferð sé að ræða haldi umferðaraukning
ekki í við íbúaþróun.