Fréttir

Málþing um börn og samgöngur

18. nóvember í ráðhúsi Garðabæjar

29.10.2019

Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember frá kl. 12.30 til 16.30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu og Vegagerðina. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi (Ráðhúsi Garðabæjar).

Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Skráning á málþingið

Dagskrá

12:30 – Málþing sett

  • Ávörp
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

  • Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs

  • Umferðaröryggi - okkar mál!  
    Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur

  • Hvernig við sjáum umferðaröryggið.
    Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
  • Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu
    Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði

  • „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
    Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni

  • Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé

14:20 – Kaffihlé

  • Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
    Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur

  • Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
    Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps

  • Öryggi barna í Reykjavík
    Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon

  • Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé

  • Saga Garðarsdóttir flytur gamanmál

16:30 – Málþingi lýkur

 

  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.