Fréttir
  • Suðurlandsvegur - Hringvegur (1).
  • Verktaki vinnur að fullum krafti að því að opna fyrir umferð
  • Verktaki vinnur að fullum krafti að því að opna fyrir umferð

Opnun fyrir umferð um Suðurlandsveg - Hringvegur (1)

Opnunin aðeins á hluta vegarins og hraði dreginn niður.

24.10.2019

Fyrirhugað er að opna fyrir umferð um nýjan Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Kotstrandarkirkju föstudaginn 25. október.

Opnunin verður aðeins á hluta vegarins til að byrja með. Þannig verður einungis önnur akrein af tveimur í austurátt opin fyrir umferð. Við brú yfir Gljúfurholtsá, verður umferð í vesturátt hleypt á aðra af akreinunum í austur, en verður svo beint yfir á rétta akrein í vesturátt, rétt vestan við brúnna. Á vegarkaflanum verður umferðarhraði dreginn niður í 50 km/klst á meðan á framkvæmdum stendur en þó verður, til að byrja með, hámarkshraði 30 km/klst í austurenda við Gljúfurholtsá.

Það er von Vegagerðarinnar að vegfarendur sýni þessum hraðatakmörkunum skilning og þolinmæði. Einnig er þess óskað að farið verði eftir öllum vegamerkingum á svæðinu og er sérstök áhersla lögð á að vegfarendur fari eftir hraðatakmörkunum og fylgi öllum gátskildum.