Fréttir
  • Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2018

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra

28.10.2019

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 1. nóvember 2019.

Ráðstefnan er nú haldin í átjánda sinn en henni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og með því að taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.

Frestur til að skrá sig er til og með 30. október 2019. Þátttökugjald er 16.000 krónur og 4.500 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.

Skráning á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar 2019

 

Dagskrá ráðstefnunnar

Tími Heiti fyrirlestrar

08:00-09:00

 Skráning
 09:00-09:15

Setning

 09:15-09:45

Hvað mun okkur finnast? - Um gildismat framtíðarinnar, Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður.  - Ágrip

 09:45-10:00

Notkun Coltrack við að gera malarvegi að bundu slitlagi á Íslandi, Björk Úlfarsdóttir, Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas HF  - Ágrip

 10:00-10:15

Endurvinnsla frálagsefna í vegagerð, Þorbjörg Sævarsdóttir, EFLA  - Ágrip

 10:15-10:45 Kaffi
 10:45-11:00

Umhverfisvæn brúarsteypa, Ólafur Wallevik, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands

 11:00-11:15

Úttektir og ástandsmat klæðinga á Vestfjörðum, Pétur Pétursson, PP-ráðgjöf  - Ágrip

 11:15-11:30

Burðargeta steyptra brúa - brotprófun brúar á Steinavötn, Guðmundur Valur Guðmundsson, Vegagerðin  - Ágrip

 11:30-11:45

Þróun á kerfi sjávarborðsmælinga, G.Orri Gröndal, Vegagerðin  - Ágrip

 11:45-12:00

Umræður og fyrirspurnir

 12:00-13:00

Matur

 13:00-13:15

Mikilvægi mótlægra umferðarljósa, Haraldur Sigþórsson, VHS  - Ágrip

 13:15-13:30

Slysagreining. Ávinningur af óhindruðum beygjustraumum. Anna Guðrún Stefánsdóttir, Verkís  - Ágrip

 13:30-13:45

Rannsóknarverkefni um mat á tíðni rauðljósaaksturs, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA  - Ágrip

 13:45-14:00

Áhrif 5G á samgönguinnviði í framtíðinni, Hrönn Karolína Sch. Hallgrímsdóttir, Mannvit  - Ágrip

 14:00-14:15

Samflutningur farþega og farms - bættar almenningssamgöngur á landsbyggðinni, Andreas Macrander, Hjólafærni, Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni og Ingi Gunnar Jóhannsson, Hugarflug ehf.  - Ágrip

 14:15-14:30

Áreiðanleiki hviðuspáa í Harmonie-Arome líkaninu, fylgni spáa, viðvarana og mælinga, Elín Björk Jónasdóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir, Veðurstofan  - Ágrip

 14:30-14:45

Umræður og fyrirspurnir

 14:45-15:15

Kaffi

 15:15-15:30

Greining á kerfum og vinnuumhverfi í vaktstöð Vegagerðarinnar, Halla Katrín Svölu- og Arnardóttir, EFLA  - Ágrip

 15:30-15:45

Rafbílar - áhrif á hljóðstig og tíðniróf, Ólafur Daníelsson, EFLA  - Ágrip

 15:45-16:00

Losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu - ferlar og líkan [erindi flutt á ensku], Brian Barr, Háskóla Íslands  - Ágrip

16:00-16:15

Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngunum, Gísli Guðmundsson, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands  - Ágrip
 16:15-16:30 Greining á samfélagslegum og hagrænum ávinningi bættra samgangna - rýni á rannsóknaraðferðum, Eva Dís Þórðardóttir, EFLA  - Ágrip
16:30-16:45

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin, Bryndís Skúladóttir, VSÓ  - Ágrip

 16:45-17:00

Umræður og fyrirspurnir

 17:00

Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar

Bergur EbbiHvað mun okkur finnast?

Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðasmiður, heldur upphafserindi ráðstefnunnar. Erindið ber heitið; Hvað mun okkur finnast? Um gildismat framtíðarinnar. Bergur er með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université deCergy Pontoise í París.