Fréttir
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins undirritaður
Tímamótasamkomulag um uppbyggingu samgönguinnviða og almenningssamgangna
Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa undirritað samkomulag um uppbyggingu samgönguinnviða og almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og bæjarstjórum sveitarfélaganna sex á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum.Fjárfesting upp á 120 milljarða króna
Heildarfjármögnun samgönguframkvæmda á svæðinu á tímabilinu er 120 milljarðar. Ríkið mun leggja fram 45 milljarða og sveitarfélög 15 milljarða. Gert er ráð fyrir að sérstök fjármögnun standi straum af 60 milljörðum króna. Hún verður tryggð við endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum við sölu á eignum ríkisins.Á tímabilinu verða 52,2 milljarðar lagðir í stofnvegi, 49,6 milljarðar í innviði Borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar í bætta umferðarstýringu og sértækar öryggisaðgerðir. Þá verður þegar í stað ráðist í að innleiða stafræna umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu framkvæmdir samkvæmt samkomulaginu
Þær framkvæmdir eru feitletraðar sem verður flýtt miðað við tillögu viðræðuhóps um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til 2033 frá nóvember 2018.Framkvæmdir | Upphaf | Lok |
---|---|---|
Vesturlandsvegur: Skarhólabraut – Hafravatnsvegur | 2019 | 2020 |
Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur – Krísuvíkurvegur | 2019 | 2020 |
Suðurlandsvegur: Bæjarháls – Vesturlandsvegur | 2021 | 2021 |
Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg | 2021 | 2021 |
Arnarnesvegur: Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut | 2021 | 2021 |
Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur – Holtavegur | 2021 | 2022 |
Borgarlína: Ártún – Hlemmur | 2021 | 2023 |
Borgarlína:Hamraborg – Hlemmur | 2021 | 2023 |
Miklabrautarstokkur: Snorrabraut – Rauðarárstígur | 2022 | 2023 |
Borgarlína: Hamraborg – Lindir | 2023 | 2024 |
Borgarlína: Mjódd – BSÍ | 2024 | 2026 |
Miklabrautarstokkur: Rauðarárstígur – Kringlumýrarbraut | 2024 | 2026 |
Reykjanesbraut: Álftanesvegur – Lækjargata | 2024 | 2028 |
Suðurlandsvegur: Norðlingavað – Bæjarháls | 2027 | 2027 |
Borgarlína: Kringlan – Fjörður | 2027 | 2030 |
Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ | 2028 | 2030 |
Borgarlína: Ártún – Spöng | 2029 | 2031 |
Borgarlína: Ártún – Mosfellsbær | 2031 | 2033 |