Fréttir
  • Tveir kostir eru taldir fýsilegir fyrir nýja Sundabraut, jarðgöng og lágbrú.

Jarðgöng og lágbrú fýsilegir kostir fyrir Sundabraut

Starfshópur um Sundabraut hefur skilað skýrslu

3.7.2019

Starfshópur um Sundabraut á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og í skýrslunni eru nokkrir valkostir vegnir og metnir. Í niðurstöðum hópsins eru tveir valkostir taldir koma til greina; jarðgöng yfir í Gufunes og lágbrú sem þverar hafnarsvæðið við Kleppsvík. Hvorki botngöng né hábrú yfir Kleppsvík voru taldir fýsilegir kostir.


Frétt um skýrsluna má finna á vef Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

Skýrsluna sjálfa má finna hér.