Aukin vetrarþjónusta á þjóðvegum
vetrarþjónusta aukin til að auka umferðaröryggi
Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra og Vegagerðin hafa ákveðið að auka
vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegakerfinu í því skyni
að bæta umferðaröryggi. Ráðherra og vegamálastjóri hafa að undanförnu kannað
með hvaða hætti og hvar helst þarf að bæta þjónustuna og Vegagerðin hefur
áætlað kostnað við þessa auknu þjónustu.
Kostnaður við aukna vetrarþjónustu með fleiri mokstursdögum og hækkun þjónustustigs nemur
um 100 milljónum króna. Breytingarnar munu verða
framkvæmdar eins hratt og unnt er með þeim tækjum og búnaði sem er til staðar.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, segir að brýnt sé að bæta vetrarþjónustu víða um
land vegna aukinnar umferðar bæði vegna atvinnusóknar milli byggðarlaga og
aukinna umsvifa ferðaþjónustu sem bjóði í síauknum mæli upp á ferðir víða um land árið um kring. „Með þessu
eykst öryggi á þjóðvegunum enda nauðsynlegt að koma til móts við aukinn
umferðarþunga og tryggja öruggar samgöngur allt árið. Reglur um snjómokstur
hafa ekki verið endurskoðaðar í nokkur misseri og þörfin var orðin brýn. Við
tryggjum meira fé til þjónustunnar í þágu aukins öryggis en um leið vil ég
minna á að við þurfum alltaf að aka eftir aðstæðum og huga að hinum íslenska
vetri,“ segir ráðherra.
Suður – og Suðausturland
Á Hringveginum verður þjónusta á
kaflanum milli Víkur og Jökulsárlóns færð upp um
þjónustuflokk. Felst aukin þjónusta bæði í aukinni viðveru og meiri
hálkuvörnum. Suðurstrandarvegur er færður upp um flokk
og fær 5 daga þjónustu í stað 2 daga áður. Þá
verður þjónusta aukin á nokkrum ferðamannavegum á Suðurlandi þar sem umferð
hefur aukist mjög, svo sem á Dyrhólavegi og við
Skógafoss. Einnig verður þjónusta aukin á nokkrum stöðum í uppsveitum á
Suðurlandi, m.a. á Skeiðavegi, Landvegi, Búrfellsvegi og víðar.
Vesturland
Þjónusta á milli Borgarness og
Vegamóta á Snæfellsnesi verður færð upp um þjónustuflokk sem og á milli Borgarness og
Hvanneyrar. Eins verður fjölgað mokstursdögum úr tveimur
í fimm daga og uppfært þjónustustig á leiðinni upp í Húsafell (á
Hálsasveitarvegi). Þá verður þjónusta á Útnesvegi aukin en umferð um
hann er meiri en á veginum yfir Fróðárheiði þar sem þjónusta hefur verið meiri.
Á þessum köflum hefur umferð aukist mjög síðustu misseri annars vegar vegna
ferðamanna og hins vegar atvinnusóknar.
Vestfirðir og Norðurland
Á Vestfjörðum verður þjónusta aukin
í nágrenni Bíldudals og í Skutulsfirði og á Norðurlandi á Svarfaðardalsvegi, í
Eyjafirði og á nokkrum stöðum á Norðausturlandi.