Fréttir
Opið fyrir styrki til rannsóknaverkefna ársins 2018
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2018
Vegagerðin veitir árlega styrki til
rannsóknaverkefna. Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun
einstakra verkefna fyrir árið 2018. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum
eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikudagsins 31. janúar 2018. Eyðublöðin
og nánari upplýsingar má nálgast hér.