Mikil aukning í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
umferðin jókst um 6,5 prósent
Ekkert lát er á aukningu umferðarinnar, á höfuðborgarsvæðinu jókst umferðin um 6,5 prósent í ágúst. Þetta er mikil aukning en að jafnaði fóru um 168 þúsund ökutæki um mælisnið Vegagerðarinnar daglega. Nú stefnir í að aukningin í ár gæti orði um 8 prósent sem yrði þá önnur mesta aukningin á eftir aukningunni árið 2007.
Umferð milli mánaða 2016 og 2017
Umferðin jókst um 6,5% í nýliðnum ágúst mánuði borið saman við sama
mánuð á síðasta ári. Þetta er mikil aukning þegar horft er til þess að ágúst
mánuður er með umferðarmestu mánuðum á höfuðborgarsvæðinu og meðalaukning á ári frá
árinu 2005 er tæp 3%.
Að jafnaði fóru um 168 þúsund ökutæki um sniðin þrjú á degi hverjum í ágúst sem er næst mesti ökutækjafjöldi á árinu.
Mest jókst umferðin um sniðið á Reykjanesbraut (Costco-sniðið) eða um 11,5% en minnst jókst umferðin ofan Ártúnsbrekku eða um 3,4%.
Umferð frá áramótum
Nú hefur umferðin á höfuðborgarsvæðinu aukist um 8,6% miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Þetta er svipuð
aukning miðað við árstíma og árið 2007 en munurinn er sá að umferðin er 24% meiri nú
en þá.
Umferð eftir vikudögum
Umferðin eftir vikudögum í ágúst var þannig að fimmtudagar
voru stærstir en eins og áður eru sunnudagar minnstir. Hlutfallslega jókst umferðin
mest á þriðjudögum en minnst á sunnudögum.
Horfur út árið 2017
Útlit er fyrir að umferðin verði um 8% meiri nú í ár miðað við síðasta ár. Ef þessi spá gengur eftir yrði það önnur mesta aukning frá
því þessar athuganir hófust árið 2005 en umferðin milli áranna 2006 og 2007 óx
um rúmlega 9% og hefur það met ekki verið slegið enn.
Talnaefni
Ath. er vakin á eftirfarandi:Öll gögn árið 2017 eru eingöngu grófrýnd og gætu því átt eftir að breytast við endanlega yfirferð.Mælisnið Vegagerðarinnar eru í heild yfir 300, á öllu þjóðvegakerfinu, hér er því aðeins um lítið brot til athugunar, sem notað er til að gefa vísbendingu um það sem er að gerast á Hringvegi.