Vetur 2008 - Ráðstefna um vetrarþjónustu á Akureyri 2.-4. apríl 2008
Ráðstefna Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu "VETUR 2008" verður haldin á Akureyri dagana 2. - 4. apríl. Fundarstaður: Sjallinn, Akureyri. Viðfangsefni ráðstefnunnar er almenn þjónusta og öryggi sem tengist akstri að vetrarlagi.
Í tengslum við ráðstefnuna verður einnig sýning á tækjum og búnaði á Akureyrarflugvelli.
Frekari upplýsingar gefur Ingibjörg Hjálmfríðardóttir, imma@congress.is
Skráning á ráðstefnuna fer fram hér: Vetur 2008 - ráðstefnuskráning
Skráningarfrestur er til 20. febrúar
Gisting
Tekin hefur verið frá gisting fyrir þátttakendur ráðstefnunnar og þarf að bóka gistinguna um leið og skráning á ráðstefnuna fer fram. Gisting greiðist beint til viðkomandi hótels, við brottför
Skráningargjald
Þátttökugjald er kr. 39.000,-
Innifalið er ráðstefnugögn, kaffiveitingar, 3 hádegisverðir og 2 kvöldverðir
Flug
Flugfélag Íslands býður sérstök kjör á flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar í tengslum við ráðstefnuna og er fargjaldið eingöngu bókanlegt hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 milli kl. 09:00 og 16:00 virka daga. Senda má einnig vefpóst á hopadeild@flugfelag.is.
Flugverð kr. 7.300,- aðra leiðina (til/frá Akureyri ef flogið er alla daga nema föstudaga)
Flugverð kr. 8.300,- aðra leiðina (til/frá Akureyri ef flogið er á föstudögum)
ATH verð eru með flugvallarsköttum.
Dagskrá:
| 2. apríl | |
|---|---|
| Rútur frá flugvelli að Hótel KEA | |
| 11:00 - 13:00 | Skráning í Sjallanum (léttar veitingar) |
| 13:00 | Skipun fundarstjóra, kynning á dagskrá, |
| 13:15 | Ráðstefnan sett, Kristján Möller samgönguráðherra |
| 13:30 | Ávarp, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri |
| 13:45 | Cost verkefni, stefnumótun um vetrarþjónustu í Evrópu. Björn Ólafsson Vg. |
| 14:15 | Veður, veðurspár og vetrarþjónusta. Einar Sveinbjörnsson Veðurvaktin |
| 14:45 |
Fyrirspurnir og umræður |
| 15:15 | Vetrarþjónusta og umferðaröryggi. Skúli Þórðarson Vegsýn |
| 15:45 | Kaffi |
| 16:15 | Vetrarþjónusta í þéttbýli. Guðbjartur Sigfússon Reykjavíkurborg, Helgi Már Pálsson Akureyrarbær |
| 17:00 | Fyrirspurnir og umræður |
| 17:30 | Fundi slitið. |
| 19:00 | Kvöldverður á Hótel KEA |
| 3. apríl | |
| 08:00 | Elit kerfið Nicolai Jónasson Vg. |
| 08:30 | Mælabúnaður við vegi, vöktun, umhirða, verklagsreglur. Karl Jensson Vg. |
| 09:00 | Ferilvöktun, aðgerðaskráning og gagnavinnsla. Einar Pálsson Vg. |
| 09:30 | Fyrirspurnir og umræður |
| 10:00 | Kaffi |
| 10:30 | Vinterman og skipulag vetrarþjónustu í Danmörku. Freddy Knudsen, Bo Sommer Vejdirektoratet Kaupmannahöfn, Stefán Sigurðsson Ístak |
| 12:00 | Fyrirspurnir og umræður |
| 12:30 | Hádegisverður á Hótel KEA |
| 13:30 | Verkefni þjónustumiðstöðva. Sveinn Sveinsson Vg. |
| 14:00 | Snjótennur, stilling og umhirða á tækjabúnaði. Daníel Árnason, Þórarinn Ólafsson Vg. |
| 14:30 | Fyrirspurnir og umræður |
| 15:00 | Sýning á tækjum og búnaði á Akureyrarflugvelli (Rútur til og frá flugvelli) |
| 19:30 | Hátíðarkvöldverður, Hótel KEA |
| 4. apríl | |
| 08:30 | Skipulag verktaka í vetrarþjónustu: Hilmar Ólafsson/Guðmundur Þorgrímsson |
| 09:00 | Hálkuvarnir, Ásbjörn Ólafsson, Jóhann Skúlason Vg. |
| 09:30 | Fyrirspurnir og umræður |
| 10:00 | Kaffi |
| 10:30 | Gæðaúttektir í vetrarþjónustu: Einar Gíslason, Guðmundur Ragnarsson Vg. |
| 11:00 | Fyrirspurnir og umræður |
| 11:30 | Samantekt og niðurstöður, NN |
| 12:00 | Fundarslit |
| 12:30 | Hádegisverður á Hótel KEA |
| 14:00 | Rútur frá KEA á flugvöll |
Í tengslum við ráðstefnuna verður sýning á tækjum og búnaði við vetrarþjónustu og einnig munu fyrirtæki sem vinna við og/eða selja hugbúnað eða annan búnað tengdum vetrarþjónustu kynna það sem þeir hafa upp á að bjóða.



