Fréttir
  • Bjarkarlundur - Skálanes veglínur

Vestfjarðavegur (60) Bjarkarlundur - Skálanes

ný tillaga að matsáætlun send Skipulagsstofnunar til ákvörðunar

24.9.2015

Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun tillögu að matsáætlun fyrir framkvæmd á Vestfjarðavegi (60) á milli Bjarkalundar og Skálaness í Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu til formlegrar ákvörðunar í samræmi við 8. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Drög að matsáætlun voru send umsagnar- og samráðsaðilum og auglýst á heimasíðu Vegagerðarinnar í júlí 2012 og hefur áætlunin verið endurskoðuð út frá ábendingum sem bárust.

Um er að ræða nýjan veg sem kemur í stað núverandi Vestfjarðavegar á milli Bjarkalundar og Skálaness við norðanverðan Breiðafjörð. Núverandi vegur liggur frá Bjarkalundi, um Þorskafjörð,Hjallaháls, Djúpafjörð, Ódrjúgsháls, Gufufjörð og Melanes að Skálaneshrauni í mynni Þorskafjarðar. Hann er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,9-22,1 km langur, háð leiðarvali. 
Skoðaðar hafa verið margar leiðir, en áætlanir eru um  að meta umhverfisáhrif fimm þeirra, þ.e. A1, D2, H, I og Þ-H.   

Tillaga að matsáætlun
Teikningar
Fylgiskjal veglína Þ-H