Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Níu prósenta minni umferð á Hringvegi í júní

mikill samdráttur heldur áfram

1.7.2020

Umferðin á Hringvegi í júní dróst saman um níu prósent í júní sem er mjög mikill samdráttur. Mestur varð samdrátturinn á Mýrdalssandi þar sem 62 prósentum færri ökutæki fóru um teljarann en í sama mánuði fyrir ári. Frá áramótum hefur umferðin dregist sama um 14 prósent.

Milli mánuða
Umferðin yfir 16 lykilteljara á Hringvegi reyndist 9% minni í júní miðað við sama mánuð á síðasta ári. Mestur mældist samdrátturinn um lykilsnið á Austurlandi eða tæplega 35% en minniháttar aukning mældist yfir mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða 0,2%.

Þó að Austurland sýni mestan samdrátt þá dróst umferðin mest saman yfir teljara á Mýrdalssandi eða um rúmlega 62% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Aðeins teljari við Úlfarsfell sýndi aukningu sem nam 3,4%.

Það sem af er ári hefur aðeins einn mánuður sýnt aukningu en það var febrúar með 0,6% aukningu.

Samanburðartafla







Frá áramótum
Nú hefur umferðin dregist saman um rúm 14%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er mesti samdráttur sem mældur hefur verið miðað við árstíma fyrir lykilmælisniðin 16.

Umferðin hefur dregist mest saman um Austurland eða um 32% en minnst um teljara á eða í grennd við höfuðborgarsvæðið eða tæplega 7%.

Umferð vikudaga
Frá áramótum hefur umferð dregist saman í öllum vikudögum en mest á sunnudögum eða um rúm 20%. Minnst hefur umferð dregist saman á þriðjudögum eða um rúmlega 12%. 

Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst hefur verið ekið á laugardögum

Horfur út árið
Eins og áður hefur komið fram er ill mögulegt að segja til um þróunina út árið, mikið veltur á næstu þremur mánuðum hvernig árið kemur út.  En nú gerir reiknilíkan umferðardeildar ráð fyrir því að umferð geti dregist mikið saman í næstu mánuðum og er því að spá um 15%  samdrætti á Hringvegi.  Gangi það ekki eftir þá gæti samdrátturinn orðið mun minni eða í kringum 10%.

Það verður fróðlegt að sjá næstu mánuði hvort að umferðin nái að verða svipuð því sem hún var á síðasta ári eða hvort áfram verði um 10% samdráttur í hverjum mánuði. 

Talnaefni