Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Minni umferð í febrúar á Hringveginum

töluverður samdráttur öfugt við það sem gerðist í janúar

4.3.2021

Umferðin í nýliðnum febrúar mánuði á Hringveginum dróst sama um 2,3 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári. Þá höfðu engar samkomutakmarkanir verið settar á. Þetta er ólíkt því sem gerðist í janúar í ár þegar umferðin jókst, en frá áramótum er umferðin nú sú sama og fyrstu tvo mánuðina í fyrra. Rétt er að hafa í huga að þrátt fyrir þetta er febrúar í ár sá þriðji umferðamesti frá upphafi.

Milli mánaða 2021 og 2020
Umferðin í nýliðnum febrúar yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi reyndist 2,3% minni en í sama mánuði á síðasta ári. Engu að síður er þetta þriðji umferðarmesti febrúarmánuður frá upphafi mælinga.

Umferðin dróst saman í þremur svæðum af fimm, eða um Suðurland (-14,2%), í og við höfuðborgarsvæðið (-2,5%) og um Austurland (-2,3%).  Umferð jókst aftur á móti um Vesturland (5,6%) og Norðurland (9,8%).

Af einstaka stöðum varð mestur samdráttur um lykilteljara á Mýrdalssandi eða -72,1% en mesta fyrir einstaka staði reyndist vera yfir lykilteljara við Gljúfurá í Húnafirði en þar mældist tæplega 20% aukning, sem er fáséður vöxtur á þessum síðustu tímum.  En ekki má lesa of mikið í sveiflur í vetrarumferð því þær eru eðlilegar vegna misjafns veðurfars.

Samanburðartafla


 





Umferð eftir vikudögum
Ef skoðað er þriggja ára tímabil frá árinu 2019 – 2021 þá hefur umferðin nú í ár verið hefðbundin, það sem af er ári, þar sem umferð er mest á föstudögum og minnst á laugardögum.  Mjög lítil breyting er á umferð á mánudögum. 

Á milli áranna 2020 og 2021 dróst umferðin saman á mánudögum (-0,6%), þriðjudögum (-0,5%), miðvikudögum (-5,1%) og laugardögum (-1,7%) en jókst á fimmtudögum (1,9%), föstudögum (4,5%) og sunnudögum (4,0%).

Frá áramótum
Þegar tveir fyrstu mánuðir ársins eru liðnir er umferðin nokkurn veginn á pari milli áranna 2021 og 2020, eða aðeins 0,1% minni nú í ár miðað við síðasta ár. En vænta má að hlutfallsleg aukning verði mikil í næsta mánuði þegar borið verður saman það tímabil þegar áhrif samkomutakmarkana, vegna fyrstu bylgju Covid-19 faraldursins voru mikil á síðasta ári, eins og komið hefur fram í fyrri fréttum af umferð.