Fréttir
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng
  • Opnun tilboða í Dýrafjarðargöng

Metrostav og Suðurverk með lægsta boð í Dýrafjarðargöng

boðið nam tæpum 8,7 milljörðum króna

24.1.2017

Tilboð Metrostav a.s. og Suðurverks hf. í gerð Dýrafjarðarganga nam tæpum 8,7 milljörðum króna eða rúmum 93 prósentum af kostnaðaráætlun og var um 630 milljónum króna lægra en næstu boð sem bæði voru nánast það sama og kostnaðaráætlunin. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist síðar á árinu en fara þarf yfir tilboðin og semja við verktakann sem iðulega tekur nokkrar vikur.

Tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag 24. janúar. Áður hafði farið fram forval þar sem sjö sýndu því áhuga. Fimm skiluðu að lokum inn tilboði, allt verktakar sem reynslu hafa af jarðgangagerð á Íslandi utan ítalski verktakinn C.M.C. di Ravenna.

Tilboðin voru þessi:

BjóðendurTilboðsupphæðHlutfall af verktakak.

Metrostav a.s., Tékklandi og Suðurverk hf., Íslandi

  8.687.208.080,-   93,21 %
C.M.C. di Ravenna, Ítalíu  9.316.632.535,-  99,97 %
ÍSTAK hf., Íslandi og
Per Aarsleff A/S, Danmörku
  9.322.252.133,- 100,03 %
ÍAV hf., Íslandi og
Marti Contractors Ltd., Sviss 
10.538.586.652,- 113,08 %
LNS Saga ehf., Íslandi og Leonhard Nilsen & Sönner AS, Noregi 10.864.596.942,- 116,57 % 
           Frávikstilboð:  
ÍSTAK hf., Íslandi og
Per Aarsleff A/S, Danmörku
  9.250.778.500,- 

   

Áætlaður verktakakostnaður

  9.319.890.000,- 100,00 %