Fréttir
  • Mokað á Mjóafjarðarheiði. Mynd/Hafþór Ægisson
  • Sums staðar er stálið 2,5 metra þykkt. Mynd/Ari B. Guðmundsson
  • Mokað á Mjóafjarðarheiði. Mynd/Hafþór Ægisson
  • Mokað á Mjóafjarðarheiði. Mynd/Hafþór Ægisson
  • Vegurinn yfir Mjóafjarðarheiði.

Íbúar Brekkuþorps komast nú landleiðina

Mokað gegnum háa skafla á Mjóafjarðarheiði

29.4.2021

Vegurinn inn í Mjóafjörð hefur verið opnaður. Aðeins tók tvo daga að ryðja í gegnum skaflana sem á köflum voru tveir og hálfur metri á hæð. Í fyrra tók verkið fjóra daga og stálið víða fimm metra þykkt.

„Heiðin lokaði í byrjun desember og við náðum svo að opna hana í gær,“ segir Ari B. Guðmundsson yfirverkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Reyðarfirði. Mun minni snjór var á leiðinni í ár heldur en í fyrra og tók verkið aðeins  tvo daga miðað við fjóra í fyrra. Á snjóþyngstu köflunum nær stálið um tveggja og hálfs metra hæð, en í fyrra voru það rúmir fimm metrar. „Það hefur verið ágætis tíðarfar undanfarinn mánuð, varla komið nokkuð hret,“ segir Ari og er ánægður að geta opnað veginn inn í Mjóafjörð þetta snemma en hann var ekki opnaður fyrr en upp úr miðjum maí á síðasta ári. Þá hafði hann verið lokaður síðan í október, fyrir utan þegar mokað var í gegn í desember fyrir Neyðarlínuna.

Í Mjóafirði búa rúmlega tíu manns yfir vetrartímann. Í Brekkuþorpi er allt til alls, kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi. Yfir vetrartímann er eina leiðin til og frá þorpinu sjóleiðis en Flóabáturinn Björgvin siglir milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar tvisvar í viku.

Ari segir þorpsbúa hafa verið áhugasama um að opna veginn sem fyrst og eru þeir líklega frelsinu fegnir.

„Leiðin er fær fjórhjóladrifnum bílum til að byrja með en sólin er þó fljót að éta sundur klakann sem liggur á veginum,“ lýsir Ari en unnið er að því að breikka snjógöngin sem fyrst um sinn eru einbreið með útskotum.