Fréttir
  • Snjóplógur á ferð við gatnamót Valþjófsdalsvegar og Vestfjarðavegar (60).

Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna?

Morgunfundur Vegagerðarinnar 23. febrúar 2021

17.2.2021

Á þessum morgunfundi verður fjallað verður um vetrarþjónustu á þjóðvegum landsins frá ýmsum hliðum. Fundurinn verður haldinn í streymi þriðjudaginn 23. febrúar nk. kl. 09:00 – 10:15.

Stöðugt er kallað eftir aukinni þjónustu við vegakerfið að vetri. Atvinnusókn á landsbyggðinni hefur breyst og fólk sækir í meiri mæli vinnu milli bæjarfélaga. Þessi samfélagsbreyting kallar á aukna þjónustu við vegakerfið. Miklu skiptir einnig að afurðir og vörur komist klakklaust milli landshluta, þrátt fyrir hálku og fannfergi. 

Vegagerðin sinnir vetrarþjónustu á stórum hluta vegakerfis landsins utan þéttbýlis. Þessum morgunfundi er ætlað að útskýra hvernig vetrarþjónustan fer fram og fá fram fleiri sjónarmið á þá þörf sem er fyrir vetrarþjónustu í þjóðfélaginu.

Dagskrá

  • Opnun fundar. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.
  • Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar – hvernig er hún ákveðin? Einar Pálsson forstöðumaður á þjónustusviði Vegagerðarinnar.
  • Framkvæmd vetrarþjónustu – vöktun og eftirlit. Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar.
  • Þróun vetrarumferðar á Íslandi. Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri á umferðardeild Vegagerðarinnar
  • Lífæð landsbyggðarinnar – áætlunarflutningar og vegakerfið. Böðvar Örn Kristinsson, forstöðumaður innanlandsflutninga Flytjanda.
  • Vetrarþjónusta – einn þáttur samgönguöryggis. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, og Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur á Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.
  • Spurningar og svör. Frummælendur svara spurningum áhorfenda. Hægt er að spyrja spurninga í gegnum síðuna Sli.do með því að slá inn kóðann: #vetur
Fundarstjóri er G. Pétur Matthíasson

Morgunfundaröð og ráðstefna

Morgunfundurinn er hluti fundaraðar sem haldin verður í vetur og lýkur í vor með ráðstefnu um yfirlagnir á Íslandi. Á fundunum, sem fylgja í kjölfar þessa, verður fjallað um bikblæðingar og þjóðvegi á hálendi Íslands.

Á ráðstefnunni verður fjallað heildstætt um yfirlagnir og bundið slitlag þar sem erlendir sérfræðingar verðar einnig fengnir til að fjalla um málefnið út frá sínu sjónarhorni og með áherslu á hvort framkvæmdum á Íslandi sé háttað á annan hátt en annars staðar.


Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/5108236/events/9533990

Spurningar. Hægt er að spyrja spurninga í gegnum síðuna Sli.do með því að slá inn kóðann: #vetur