Fréttir
Hrun í umferðinni á Hringvegi
Allt að 42 prósenta minni umferð í ár en á sama tíma í fyrra.
Það sem af er mars hefur umferðin á Hringveginum dregist saman um 20-25 prósent. Allt upp í 42 prósent þar sem mest er. Þetta er gríðarlega mikill samdráttur sem skýrist auðvitað að mestu af Covid-19 og snarfækkun ferðamanna en telja verður líka líklegt að slæmt veður undanfarnar vikur spili líka inn í. Þannig leggst allt á eitt.
Þetta er mun meiri samdráttur en á höfuðborgarsvæðinu eða um tvöfalt meiri. Sjá eldri frétt.
Umferðin á Hringveginum hefur samtals dregist saman um tæp 20%, þegar öll mælisnið eru tekin með. Ef hins vegar mælisniðið við Úlfarsfell er undanskilið fer samdrátturinn upp í 25%. Þessi samdráttur samsvarar um rúmlega einu prósentustigi á dag, meðan samdrátturinn á höfuðborgarsvæðinu nemur hálfu prósentustigi. Umferðin dregst því tvöfalt hraðar saman á Hringvegi utan höfuðborgarsvæðis en innan þess.Þótt bæði 16 lykilteljarar á Hringvegi og 3 lykilmælisnið á höfuðborgarsvæðinu sýni góða fylgni við umsvif í þjóðarbúinu (hagvöxt/landsframleiðslu) þá sýna lykilteljarar á höfuðborgarsvæðinu mun betri fylgni. Það mætti því segja, miðað við stöðuna fyrir helgi, að hagkerfið sé að kólna um 0,5% á dag.
Ætlunin er að gera næstu samantekt á höfuðborgarsvæðinu á morgun miðvikudag. Líklegt má búast við auknum samdrætti með hertara samkomubanni og þeirri staðreynd að afar fáir ferðamenn eru enn í landinu.
Staðsetning á Hringvegi | 2019 | 2020 | Samdráttur í % |
---|---|---|---|
Mýrdalssandur | 28.572 | 16.653 | - 41,7 % |
Vestan Hvolsvallar | 80.312 | 57.772 | - 28,1 % |
Á Hellisheiði | 191.962 | 145.599 | - 24,2 % |
Á Geithálsi | 267.200 | 211.713 | - 20,8 % |
Við Úlfarsfell | 728.021 | 636.578 | - 12,6 % |
Um Hvalfjarðargöng | 156.738 | 121.062 | - 22,8 % |
Við Hafnarfjall | 97.279 | 71.037 | - 27,0 % |
Á Holtavörðuheiði | 27.593 | 18.108 | - 34,4 % |
Við Gljúfurá | 28.447 | 19.310 | - 32,1 % |
Í Öxnadal | 24.679 | 17.934 | - 27,3 % |
Í Kræklingahlíð | 71.451 | 52.695 | - 26,3 % |
Á Mývatnsheiði | 12.368 | 9.107 | - 26,4 % |
Á Mývatnsöræfum | 7.577 | 4.452 | - 41,2 % |
Á Möðrudalsöræfum | 7.004 | 4.362 | - 37,7 % |
Á Fagradal | 23.242 | 18.877 | - 18,8 % |
Við Hvalnes í Lóni | 6.090 | 4.238 | - 30,4 % |
Samtals | 1.758.535 | 1.409.497 | - 19,8 % |